153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgu.

[15:31]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við höfum rætt um aukna réttarvernd fyrir leigjendur fram og til baka í mörg ár án þess að neinar alvöruaðgerðir skili sér inn í þingið. Má þá vænta þess að það komi inn frumvarp um leigubremsu á þessu ári, að hæstv. innviðaráðherra hafi forgöngu um það? Er pólitískur vilji til þess í ríkisstjórninni að ráðast í alvöruaðgerðir sem tryggja m.a. að aukinn húsnæðisstuðningur leki ekki bara beint út í leiguverð heldur styðji raunverulega við tekjulægsta fólkið á húsnæðismarkaði? Hér er talað um tekjuöflun og ég fagna því að hæstv. forsætisráðherra sé tilbúinn að skoða aukna tekjuöflun til að bæta afkomu ríkisins og taka á þenslu. En hér fyrir nokkrum mánuðum virtist ekki vera pólitísk samstaða um það innan ríkisstjórnarinnar að ráðast í neina tekjuöflun aðra en þá sem kemur harðast niður á tekjulægsta fólkinu í landinu í formi hærri krónutölugjalda. Þetta virtist vera eina tekjuöflunin sem hér var pólitísk samstaða um. Það var ekki einu sinni hægt að hækka lítillega gjöld á fiskeldisfyrirtækin. (Forseti hringir.) Verður einhver breyting hér á núna? Er pólitísk samstaða um það við ríkisstjórnarborðið (Forseti hringir.) að hækka skatta á ofurhagnað og auðlindarentu og setja bremsu á leiguverð eins og hefur t.d. verið gert í Danmörku og Skotlandi? Er pólitísk samstaða um þetta?