aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgu.
Herra forseti. Hvað varðar leigumarkaðinn þá lýstum við því yfir í tengslum við gerð kjarasamninga nú fyrir áramót, þegar meiri hluti félaga á almennum vinnumarkaði skrifaði undir samninga, að við myndum setja af stað þessa vinnu, ekki bara um leigubremsu heldur um leigumarkaðinn almennt. Eftir því sem mér skilst mun sá hópur, þar sem aðilar vinnumarkaðarins sitja, skila af sér tillögum jafnt og þétt. Ég treysti mér ekki til að segja hvenær það gerist en sú vinna er í fullum gangi. Ég held að mörgum hafi hreinlega verið mjög misboðið þegar nánast á sama tíma og stjórnvöld gripu til þess ráðs að hækka húsnæðisstuðning, sem var þörf aðgerð bæði til eigenda og leigjenda, þá heyrðist ekki bara af miklum hækkunum á leiguverði heldur líka gríðarlega háum arðgreiðslum út úr vissum leigufélögum. Ég vil trúa því að það sé vilji til þess hér á þingi, þvert á flokka, til að takast á við þetta. Ég get bara tekið undir með hv. þingmanni, það er auðvitað ekki þannig að við séum að hækka húsnæðisstuðning til að fita þessi leigufélög, það er alveg skýrt.