breytingar á háskólastiginu.
Virðulegi forseti. Þarna ruglar hv. þingmaður saman tvennu, annars vegar almennri fjármögnun háskólastigsins á Íslandi og síðan rekstri háskólanna ár frá ári og stöðunni eins og við metum hana og eigum í nánu samtali við háskólana um mánuð eftir mánuð í ráðuneytinu. Þegar ákveðið var að fara í samstarf háskólanna eftir vinnu í ráðuneytinu þá lá ekki ljóst fyrir að Háskóli Íslands kæmi út í þeim mínus sem raun varð síðan í lok árs. Það lá ekki fyrir í ráðuneytinu eftir samtöl fyrr en í lok ársins og það var það sem ég var að vísa í. Annað er auðvitað staðreynd, það hvernig við erum að fjármagna háskólana okkar og hvernig við ætlum að gera það betur og hvernig ætlum við að ná þeim markmiðum að fjármagna háskólastigið betur. Það er rétt, og ég skil þær athugasemdir sem komu fram frá háskólanum almennt og við eigum í samtali við þá um það, að við þurfum að fjármagna háskólastigið okkar betur og ná meiri árangri gagnvart gæðum háskólanáms á Íslandi ef við ætlum að vaxa út úr stöðunni og vandanum sem við erum t.d. í í dag. Og þarna er tvennu ólíku saman að jafna og skýrist hér með.