153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

samningar vegna liðskiptaaðgerða.

[15:42]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegi forseti. Á Íslandi er til staðar sjúkratryggingakerfi þar sem notendum heilbrigðiskerfisins er tryggð nauðsynleg heilbrigðisþjónusta án tillits til efnahags. Þannig eiga þeir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda að geta fengið viðeigandi þjónustu innan ásættanlegs tíma. Í staðinn hafa óskýr réttindi sjúkratryggðra þar sem ekki er samið um heilbrigðisþjónustu leitt af sér langa biðlista og búið til tvöfalt heilbrigðiskerfi þar sem þeir sem hafa efni á geta borgað sig fram fyrir röðina og fengið nauðsynlega þjónustu gegn háu gjaldi. Það á m.a. við um liðskiptaaðgerðir en fjöldi þeirra sem hefur borgað fyrir þær beint úr eigin vasa eða leitað bót meina sinna erlendis hefur stóraukist á síðustu árum. Eftir sitja þeir sem ekki hafa tök á að borga úr eigin vasa eða fara erlendis í meðferð. Ég vona að hæstv. heilbrigðisráðherra taki undir með mér um að það er brýnt að samið verði fljótt um framkvæmd þessara aðgerða, unnið að samningum við frjáls heilbrigðisfyrirtæki og að fjölgað verði liðskiptaaðgerðum fyrir alla þá sem þjást í biðinni. Því vil ég fá að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig gengur að semja um framkvæmd þessara aðgerða og þá einnig við Klíníkina? Hversu margar liðskiptaaðgerðir telur ráðherra að muni takast að framkvæma árið 2023? Og að lokum: Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2023 samþykkti Alþingi 750 millj. kr. viðbótarframlag til að fjármagna fleiri liðskiptaaðgerðir til að vinna niður biðlista utan sjúkrahúsa. Hefur ráðherra í hyggju að nota þessa fjármuni til að endurgreiða sjúkratryggðum sem hafa farið í liðskiptaaðgerð það sem af er þessu ári?