153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

samningar vegna liðskiptaaðgerða.

[15:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Þetta frumvarp hefur verið um þó nokkra hríð í undirbúningi í ráðuneytinu og er á þeim stað að það er nýkomið úr samráðsgátt. Þar er, eins og hv. þingmaður kom inn á, meginbreytingin að taka á þeim ákvæðum laganna sem kveða á um eyðingu kynfruma og fósturvísa við andlát eða sambúðarslit þrátt fyrir að geymslutími þeirra sé ekki liðinn. Breytingin mun lúta að því að einstaklingum verði heimilt að samþykkja notkun fyrrverandi eða eftir atvikum eftirlifandi maka á kynfrumum eða fósturvísum. Við erum alveg sammála þar, ég og hv. þingmaður, en svo verðum við að sjá hvort frekari breytingar verða gerðar á frumvarpinu því að það á eftir að fara í dómsmálaráðuneytið og það á eftir að taka tillit til þeirra athugasemda sem komu í samráðinu. Ég held að það fari vel á því að koma með frumvarpið (Forseti hringir.) inn í þingið og svo inn í velferðarnefnd eins og frumvarp það sem hv. þingmaður er með hér til umfjöllunar í þinginu.