frestun á skriflegum svörum.
Forseti. Uppáhalds fundarstjórnarefnið mitt. Nú er staðan sú að það eru 11 fyrirspurnir sem hafa verið lengur en 100 daga í ráðuneytum frá því í lok september, bara rétt eftir að þing byrjaði. Það eru t.d. sjö fyrirspurnir frá Viðreisn, ein frá Framsóknarflokki, tvær frá Pírötum og ein frá Samfylkingu. Allt fyrirspurnir sem hafa beðið á borði ráðherra í meira en 100 virka daga. Viðmiðið er 15 virkir dagar. Ég hvet forseta enn og aftur til að vera ansi duglegur að sparka í rassgatið á þessum ráðherrum og fá þá til að senda svör til þingsins.