153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

frestun á skriflegum svörum.

[15:52]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með kollegum mínum, hv. þingmönnum Guðmundi Inga Kristinssyni og Birni Leví Gunnarssyni. Ég er sjálfur með skriflega fyrirspurn frá 17. nóvember sl. til fjármála- og efnahagsráðherra, um útselda vinnu sérfræðinga Stjórnarráðsins og opinberra háskóla. Ég tel mikilvægt að fá svar við þessari spurningu sem allra fyrst og það er mikilvægt að við þingheimur og almenningur sé upplýstur um það hvort sérfræðingar hjá Stjórnarráðinu séu að selja vinnu sína líka úti í bæ, það er gott að vera nálægt valdinu og vera sérfræðingur í leiðinni og selja sérfræðiþekkingu sína. Það er mjög mikilvægt að svar við þessari fyrirspurn komi sem allra fyrst.