153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

lengd þingfundar.

[15:56]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta er ljúft og skylt að geta þess að forseta höfðu ekki borist athugasemdir af þessu tagi þegar þingfundur hófst og ekki á fundi formanna þingflokka í morgun. Það hins vegar komu fram sjónarmið um það og var komið á framfæri við forseta að þetta kynni að vera skynsamlegt út frá því að hægt væri að ljúka umræðu um þjóðaröryggisstefnu í kvöld og efna til atkvæðagreiðslu við upphaf þingfundar á morgun.