153. löggjafarþing — 69. fundur, 27. feb. 2023.
lengd þingfundar.
Forseti hefur gert grein fyrir því að það er rétt að forseti gerði ekki ráð fyrir því að gera þessa tillögu. Hins vegar komu fram athugasemdir sem forseti taldi að væru skynsamlegar og þess vegna er forseti að bera þetta undir þingsalinn, þannig að það er ekki ákvörðun forseta heldur meiri hluta hér í þingsal hvort við þessu verður orðið eða ekki.