153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

Mikil notkun þunglyndislyfja á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.

[16:14]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þetta eru alvarleg mál sem hér eru til umræðu, sú vanlíðan, kvíði og þunglyndi sem það veldur börnum og ungu fólki fyllir hjartað óneitanlega dálítilli sorg, dálítið mikilli sorg. Þetta mikilvæga æviskeið sem mörg okkar minnast sem tíma frá einni sælustund til hinnar næstu gildir ekki um alla. Mikil notkun kvíða- og þunglyndislyfja gefur til kynna að hér sé á ferðinni mikill heilsufarsvandi sem er enn að vaxa, ekki síst á meðal barna og ungmenna, en tölurnar sýna tugprósenta aukningu notenda. Það er grafalvarlegt mál og við verðum öll að leggja allt í sölurnar til að ná utan um hvað það er í samfélagsgerðinni sem ýtir undir þessa auknu tíðni geðraskana. Í hinum sítengda heimi sem við búum við skýtur það skökku við að félagsleg einangrun sé að aukast. Heimsfaraldurinn hafði umtalsverð áhrif á þá aukningu, eins og við þekkjum, og sömuleiðis á andlega heilsu barna og aðstæður í fjölskyldum.

Samkvæmt skýrslu Barnaheilla um fátækt frá 2021 segir, með leyfi forseta, að tilkynningum á Íslandi um vanrækslu hafi fjölgað um 20% frá árinu 2020–2021 og tilkynningum um ofbeldi á sama tíma um 23%. Aðrar og varanlegar félagslegar breytur, eins og þroskahamlanir, fátækt eða uppruni ýta undir einangrun samkvæmt sömu skýrslu og það er alveg ljóst að eitt af stóru verkefnunum í nútímasamfélagi er að sporna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika.

En við verðum líka að fagna því sem vel er gert. Þær 780 millj. kr. í sérstökum framlögum til geðheilbrigðisþjónustu, sem hæstv. heilbrigðisráðherra úthlutaði núna í janúar, nýtast m.a. til þess að efla þriðja stigs geðheilbrigðisþjónustu, skólaheilsugæslu, BUGL og BUG á Akureyri.

Almennt er notkun þunglyndis- og kvíðalyfja mikil á Íslandi, eins og fram hefur komið, og hvort utanaðkomandi þættir spili veigameiri hlut í andlegri velmegun fólks hér á landi er erfitt að segja til um. Það er mikilvægt að við leggjum málefninu lið með þeim aðgerðum sem við höfum haldið úti til þessa, en við verðum líka að halda áfram, m.a. með aðgerðir til að draga úr félagslegri einangrun viðkvæmra hópa sem og einmanaleika eldra fólks.

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að ná utan um málaflokkinn og þakka ég fyrir þessa góðu umræðu og vona að við tökum öll utan um hana af alúð og natni öllum til heilla.