Mikil notkun þunglyndislyfja á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Virðulegi forseti. Eitt af því sem einkennir þjóðfélag nútímans er að við leitumst eftir því að finna leiðir til þess að dempa áhrif í stað þess að tækla ástæður á bak við hlutina. Gott dæmi um þetta er hin mikla notkun þunglyndislyfja, bæði hér á landi og víðast hvar í hinum vestræna heimi. Læknar hafa kokgleypt þá kenningu að þunglyndi orsakist af vandkvæðum í efnaskiptum heilans og að eina ráðið sé þunglyndislyf sem lagi þau efnaskipti. Þunglyndislyf hafa svo sannarlega gert líf margra betra en þau orsaka einnig deyfingu á flestum öðrum tilfinningum og oft eykst einfaldlega þörfin fyrir stærri og stærri skömmtun. Ástæður fyrir síaukinni tíðni þunglyndis má kannski finna í því breytta samfélagi sem við lifum í, samfélagi þar sem við höfum misst tengsl við allt og alla í kringum okkur. Það samfélag sem við búum í, samfélag hraða og stöðugrar samkeppni, hefur rofið mikilvæg tengsl okkar sem einstaklinga við margt af því sem tryggir geðheilsu okkar. Þar má einna helst nefna tengsl okkar við annað fólk og tengsl okkar við umhverfið í kringum okkur. Í dag þekkjum við varla nágranna okkar með nafni og samgangur og bein samskipti á milli fólks hafa dregist verulega saman, nema kannski í minni sveitarfélögum. Sannur vinahópur fólks hefur dregist verulega saman á meðan vinahópurinn á samfélagsmiðlunum er stór en sannar tilfinningar eru aldrei gerðar opinberar í þeim ímyndarheimi sem fólk lifir í þar. Við sáum mikilvægi þess að vera í tengslum við náttúruna þegar við gengum í gegnum heimsfaraldur en margir hreinlega héldu andlegu heilsunni með því að fara út að ganga.
Virðulegi forseti. Við þurfum að huga að þróun samfélagsins sem við lifum í svo að við séum ekki eins háð þessum deyfandi þunglyndislyfjum sem við eigum víst Evrópumet í að ávísa.