Mikil notkun þunglyndislyfja á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Virðulegur forseti. Á Íslandi hefur geðlyfjanotkun tvöfaldast á síðustu 15 árum og hér eru u.þ.b. 60.000 einstaklingar sem glíma við geðræn vandamál. Við þurfum að fara ofan í kjölinn á því hvað það er í samfélaginu okkar sem veldur þessari miklu aukningu. Lyfin sem gefin eru við geðrænum vandamálum hafa reynst vel í mörgum tilfellum en því miður ekki öllum. Hér langar mig, því aðeins er talað um mikilvægi hugrænnar atferlismeðferðar sem er ein tegund sálfræðimeðferðar sem hefur í gegnum árin verið mikið rannsökuð við ýmsum sálrænum vanda en þar eru tengsl milli tilfinninga, hugsana og hegðunar skoðuð til hlítar. Í atferlishluta meðferðarinnar er skoðað hvernig einstaklingurinn bregst við erfiðum hlutum og hvort mögulegt sé fyrir hann að bregðast öðruvísi við til að bæta líðan. Hugræn atferlismeðferð samhliða notkun þunglyndislyfja er mikilvægt verkfæri til að ná enn betri árangri í að bæta líf þeirra sem þjást af þunglyndi. Það er slæmt að hugsa til þess að einn af hverjum þremur einstaklingum sem glíma við þunglyndi fær ekki endilega bót sinna meina með þeim lyfjum sem honum eru gefin. Rannsóknir hafa sýnt að hreyfing og hollt mataræði hafa svipuð áhrif og væg geðlyf.
Virðulegi forseti. Við þurfum að stíga fastar til jarðar í þeim efnum. Lýðheilsa eins er hagur allra. Við þurfum fleiri úrræði sem gagnast geta í þessari baráttu og við þurfum að hafa kjark til að skoða fleiri leiðir í meðferðarúrræðum þegar kemur að geðrænum kvillum.