153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

Mikil notkun þunglyndislyfja á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.

[16:28]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir að hefja máls á þessu mjög mikilvæga máli. Það er rétt sem kom fram í þeim tölum sem málshefjandi fór með hérna áðan að ástandið er vægast sagt hrikalegt. Við erum með langmesta notkun á geðlyfjum af öllum OECD-ríkjum, öllum ríkum þjóðum í samfélaginu. Meðaltalsnotkun í OECD-löndum er 103 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa. Á árinu 2019 þá vorum við með 147,1 dagskammt á meðan þeir voru 103 hjá OECD að meðaltali. Og þetta fer bara versnandi. Árið 2017 voru dagskammtarnir 141,4. Árið eftir vorum við komin upp í 144. Þetta eru síðustu tölur. Samanburðurinn við Norðurlöndin er líka sláandi. Ef við skoðum t.d. börn 5–9 ára þá tekur 2,1% drengja hér svefnlyf árið 2015 en í Noregi er það 1%. Svona getum við haldið áfram, lengra og lengra. Af stúlkum taka 0,85% svefnlyf en í Noregi 0,56%. Það er alltaf miklu hærra hjá okkur, helmingi hærra eða meira. Ég tel að hér sé líka um menningarlegt vandamál að ræða. Við erum svolítið land skjótra lausna og svo er líka lífsbaráttan á Íslandi einfaldlega harðari en í öðrum ríkjum. Það er verra að vera fátækur hér en annars staðar á Norðurlöndunum og verra en í öðrum ríkjum. Einnig má benda á skólakerfið, staða drengja í skólakerfinu hefur alls ekki verið sem skyldi. 38% drengja 15 ára lesa sér ekki til gagns og líður illa í skólanum. Við þurfum að taka á þessu og helst með stórátaki, hreinlega. Það er það eina sem er í boði hvað þetta varðar. (Forseti hringir.) Það gerum við einungis með því að greina vandann algjörlega og standa öll saman og við verðum að geta tekið á þessum málum. (Forseti hringir.)Þetta er mál sem við höfum ekki efni á að gera ekkert í.