Mikil notkun þunglyndislyfja á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Forseti. Það eru áhugaverðar umræðurnar hérna. Ég velti dálítið fyrir mér: Er það neikvætt að við séum að nota svona mikið af lyfjum eða erum við bara á undan öðrum þjóðum? Er eitthvað sérstakt á Íslandi sem útskýrir þetta miðað við aðrar þjóðir? Við erum ekki með svör við því. Kannski erum við bara komin lengra áfram í greiningum og erum einmitt að grípa betur til varúðarúrræða með lyfjum heldur en aðrar þjóðir, hver veit. Við vitum alla vega að samsetningin á þessu er flóknari en augljóst er. Meðferð t.d. við ofvirkni er ekki mikið meiri en með þeim lyfjum sem eru í boði og þetta eru ný lyf. Við getum ekki farið 20 ár aftur í tímann og borið það saman við hvernig ástandið er núna þegar þau lyf voru einfaldlega ekki til staðar þá. Það er öðruvísi en meðferð við þunglyndi þar sem lyf hjálpa til við meðferð en þar vantar meðferðarúrræðin meðfram lyfjagjöfinni. Kannski erum við rosalega dugleg í því að mæta þessum vanda með lyfjagjöf en rosalega léleg í því að mæta vandanum á sama tíma í meðferð. Kannski er það vandinn þegar allt kemur til alls. Kannski er lyfjavandinn ekki vandamál. Kannski er hann vísbendingin um það hvert vandamálið er og hvar annars staðar við þurfum að grípa til úrræða. Við þurfum að skoða hvar orsökin liggur. Kannski er það í þessu hamstrahjóli sem við erum búin að vera í í samfélaginu síðan fyrir hrun. Eftir hrun hafa áhrifin sem sagt verið mikil á lífsgæðakapphlaupið. Það eru aðrar kröfur nýrrar kynslóðar til ákveðinnar velsældar, að vera ekki í stöðugu álagi og stöðugri yfirvinnu heldur að geta sinnt lífi, vinum, fjölskyldu og áhugamálum. Kannski er það heila vandamálið, að samfélagið okkar er ekki byggt upp fyrir velsældarhagkerfi næstu kynslóðar.