153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

Mikil notkun þunglyndislyfja á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.

[16:33]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Það er ekki að ástæðulausu sem besta mögulega heilbrigðisþjónusta á að vera aðgengileg öllum óháð efnahag. Það sama gildir um sálfræðiþjónustu en af einhverri ástæðu hefur ríkisstjórnin þráast við að gera andlegu heilbrigði jafn hátt undir höfði og líkamlegu. Slæm staða geðheilbrigðismála er alvarleg. Andleg veikindi eru algengasta orsök örorku. Aðgengileg sálfræðiþjónusta er til þess fallin að draga úr nýgengi örorku, draga úr brotthvarfi af vinnumarkaði og bjarga mannslífum. Niðurgreiðslunni fylgir auðvitað kostnaður í upphafi en hún mun draga úr kostnaði samfélagsins til framtíðar og hún mun bæta lífsgæði fólks varanlega. Þessa niðurgreiðslu hefur Alþingi samþykkt en ríkisstjórnin hefur sýnt henni fullkomið áhugaleysi. Við vitum að þessi ríkisstjórn er tilbúin til að taka stórar ákvarðanir í tengslum við heilsu fólks. Við sáum það svo vel á viðbrögðunum við heimsfaraldrinum. Hvers vegna er hún ekki tilbúin til að taka mun smærra skref til að tryggja fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu? Hverjir eru það sem myndu græða mest á bættu aðgengi að sálfræðiþjónustu? Það er tekjulágt fólk, fólk utan vinnumarkaðar og námsmenn. Ungt fólk er líklegast til að tilheyra öllum þessum hópum og það er einnig á þeim aldri sem andleg veikindi koma oftast fram. Það er til mikils að vinna að tryggja þessum hópi þá nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu sem sálfræðimeðferð er. Hverjir eru það sem græða á óbreyttu kerfi? Svarið við því er: Ekki nokkur einasta sála. Hæstv. heilbrigðisráðherra verður að taka til ígrundunar hver kostnaðurinn af því er að gera ekki neitt.