þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Virðulegur forseti. Já, það var að sjálfsögðu margt rætt í þessari vinnu okkar í nefndinni um endurskoðun og yfirferð á þjóðaröryggisstefnunni og þær tillögur sem þar komu fram. Við höfum lagt áherslu á það, eins langt og þær skuldbindingar ná sem við höfum skrifað upp á, að tryggja að það séu ekki kjarnorkuvopn á ferð við eða á Íslandi. Ég tek því alveg undir þá nálgun sem hér var lýst og ég vona að við höldum áfram að vinna í því að tryggja að slíkt geti orðið. Eins og ég sagði hér í framsögu þá er þessi framsaga sem ég fór með áðan og nefndarálitið sem ég kynnti niðurstaða nefndarinnar sem allir nefndarmenn skrifuðu undir og því er hún hér til umræðu. En við vinnum sannarlega áfram að þessu sameiginlega markmiði okkar og ég deili þeim skoðunum.