þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni utanríkismálanefndar fyrir svarið. Ég fagna reyndar breytingartillögu meiri hlutans um að á eftir orðunum „öryggi borgaranna“ í a-lið komi: varnir landsins. Það er mikilvægt að það standi. Fyrst þegar ég sá a-lið þessarar tillögu þá spurði ég: Hvað með varnir landsins? En ég get ekki séð að það sé neitt í þessu plaggi sem tekur raunverulega á þessum nýju öryggismálum. Evrópa er gjörbreytt. Það er rúmlega ár síðan innrásin varð. Evrópa mun aldrei verða sú sama aftur, það er alveg kristaltært. En við virðumst ekki vera að taka þátt í þeirri breytingu hvað varðar öryggis- og varnarmál okkar, svo mikið er ljóst af þessari breytingartillögu og líka nefndaráliti með breytingartillögunni. En ég fagna því að orðin um varnir landsins séu komin í a-lið. Það er mjög gott og mikilvægt.
Annað sem mig langar að spyrja um er það sem segir í núgildandi þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, þ.e. að „þjóðaröryggisstefnan feli í sér eftirfarandi áherslur sem hafi jafnt vægi“, og síðan eru taldir upp ellefu töluliðir. Ég get lofað hv. þingmanni því að það er enginn sem trúir því að þessir töluliðir, frá 1–11, hafi jafnt vægi. Í 3. tölulið er t.d. talað um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, í 4. tölulið er fjallað um varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna, í 5. tölulið er talað um að efla og þróa frekari norræna samvinnu í öryggismálum. Í 2. tölulið er talað um umhverfis- og öryggishagsmuni Íslands. Það er augljóst mál að þessir liðir hafa ekki jafnt vægi. Það er alveg augljóst mál. Það er klárt mál að við byggjum okkar varnir á NATO-aðild Íslands og varnarsamningi við Bandaríkin, aðrir töluliðir hafa ekki jafnt vægi á við 3. tölulið, um Atlantshafsbandalagið, og 4. tölulið, um varnarsamning við Bandaríkin. Það eru grundvallarstoðir undir varnir Íslands svo það liggi fyrir. Það væri gaman að fá að heyra álit hv. þingmanns á þessu jafna vægi sem er í þjóðaröryggisstefnunni. Og að lokum: (Forseti hringir.) Hvernig stendur á því að það er ekki komin varnarstefna? Af hverju mótar Ísland ekki varnarstefnu (Forseti hringir.) eins og lagt er til í breytingartillögu sem lögð hefur verið fram við þessa þjóðaröryggisstefnu?