153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[17:08]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að grauta ekki heldur öllu saman í þessari umræðu. Þjóðaröryggisstefnan er það sem hún er og stendur fyrir. Varðandi töluliði og vægi þeirra … (Gripið fram í.) Ég hef orðið hér. Þessu var stillt þannig upp þegar hún var sett saman á sínum tíma og í nefndaráliti 2016. Almennari atriði eru talin upp fyrr í textanum og svo koma önnur. Varðandi varnarstefnu fyrir Ísland þá er það, eins og hér var nefnt, varnarsamningur við Bandaríkin, við erum líka með aðild að Atlantshafsbandalaginu, nýuppfærða grunnstefnu bandalagsins og allt þetta myndar varnarstefnu landsins. Við skulum bara halda því til haga. Ég vil líka halda því til haga að stjórnvöld hafa haldið mjög vel á málum undanfarin misseri og ég tala nú ekki um í viðbrögðum vegna þessara hræðilegu stríðsátaka og árásar inn í Úkraínu og þess sem af því hefur leitt, svo það sé sagt.