153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[17:10]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ein af frumskyldum íslenskra stjórnmála er að tryggja öryggi og varnir okkar. Þar vega þyngst varnir gegn ógnum er kunna að valda sjálfstæði okkar, fullveldi, lýðræðislegu stjórnarfari, landamærum og innviðum, öryggi landsmanna og stjórnkerfi okkar skaða, hvort sem um er að ræða ógn utan eða innan lands, af mannavöldum eða sökum náttúruhamfara hér á landi. Samkvæmt lögum um þjóðaröryggisráð ber ráðinu að stuðla að endurskoðun þjóðaröryggisstefnu á fimm ára fresti. Það er mikilvægt að slík endurskoðun eigi sér stað og enn mikilvægara að svo sé gert ef atburðir eða breytingar eiga sér stað sem hafa haft eða geta haft áhrif á þjóðaröryggi.

Í kjölfar heimsfaraldurs og nú í ljósi stríðsins í Úkraínu má segja að endurskoðunin sé svo sannarlega tímabær. Þar sem ég sit fyrir hönd meiri hlutans á þingi í þjóðaröryggisráði og einnig sem nefndarmaður í utanríkismálanefnd hefur aðkoma mín því verið bæði á vettvangi ráðsins og nefndarinnar. Árið 2016 samþykkti Alþingi þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og lagði það í hendur ríkisstjórnar að fylgja stefnu um þjóðaröryggi eftir sem tryggi sjálfstæði, fullveldi og friðhelgi landamæra landsins, öryggi borgaranna og vernd stjórnkerfis og grunninnviða.

Við endurskoðun stefnunnar fjallaði þjóðaröryggisráð um málið á reglulegum fundum og hélt sérstakan vinnufund þar um. Eins og fram kemur í greinargerð með tillögunni var litið til þess að störf þjóðaröryggisráðs á undanförnum árum væru til þess fallin að leggja góðan grunn að ábendingum um endurskoðun stefnunnar. Helst má þar nefna skýrslur varðandi eftirlit ráðsins með framfylgd stefnunnar, svo sem skýrslu ráðsins um ástand og horfur í þjóðaröryggismálum og varðandi upplýsingaóreiðu í tengslum við heimsfaraldur. Að auki hefur ráðið staðið fyrir málþingum og ráðstefnum, m.a. um fjölþáttaógnir og þjóðaröryggi og fullveldi. Í skýrslu þjóðaröryggisráðs um mat á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum, sem birt var í febrúar 2021, var lagt mat á margvíslega áhættuþætti og í þeim efnum tekið mið af markmiðum og áherslum þjóðaröryggisstefnunnar. Margir þessara áhættuþátta tengjast innbyrðis og eru bæði af alþjóðlegum og innlendum toga. Lagt var mat á einstaka áhættuþætti, aðlögunarhæfni samfélagsins og áfallaþol þess, m.a. í tengslum við virkni mikilvægra innviða. Í skýrslunni var einnig að finna ábendingar um þætti sem þjóðaröryggisráð telur að þurfi að taka til sérstakrar skoðunar af hálfu stjórnvalda.

Í mars 2022 samþykkti þjóðaröryggisráð svo að fela stýrihópi ráðsins að gera tillögur að uppfærðri matsskýrslu vegna hinnar alvarlegu stöðu sem komin var upp vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Leit sú skýrsla dagsins ljós í desember. Í skýrslunni segir m.a. að ný staða blasi við í öryggismálum í Evrópu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Þar með hafi skapast eitt alvarlegasta hættuástand í öryggismálum álfunnar frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Með leyfi forseta vil ég vitna í skýrsluna hvað varðar breytingar á grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins, en þar segir:

„Ný grunnstefna Atlantshafsbandalagsins var samþykkt á leiðtogafundi þess í júní 2022. Í stefnunni eru skilgreind meginmarkmið og verkefni bandalagsins næsta áratug. Hin nýja grunnstefna endurspeglar gjörbreytt öryggisumhverfi frá því að fyrri grunnstefna var samþykkt árið 2010. Þar segir að óvissa ógni öryggi bandalagsríkja og friði og stöðugleika á alþjóðavísu og að Rússland sé helsta ógnin við öryggi bandalagsríkjanna. Rússland leitist við að koma á fót áhrifasvæði og beinni stjórn með þvingunum, undirróðursstarfsemi, árásarógn og innlimunum. Rússland hiki ekki við að beita valdi til þess að ná fram pólitískum markmiðum sem grafi undan regluverki alþjóðasamskipta og lýðræðislegum gildum. Þá sé stefna kínverskra stjórnvalda að mörgu leyti vaxandi áskorun fyrir öryggishagsmuni Atlantshafsbandalagsins. Leiðtogarnir ákváðu að styrkja verulega fælingarmátt og varnir bandalagsins, einkum með fjölgun liðsafla í austurjaðri þess, aukinni viðbragðsgetu og eflingu netvarna.“

Virðulegi forseti. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það að við lifum á óvissutímum í varnar- og öryggismálum og því er endurskoðun þjóðaröryggisstefnu okkar veigamikill þáttur í að skoða hvar við stöndum og hvernig við getum gert betur til að tryggja þjóðaröryggi okkar í framtíðinni. Það er mat þjóðaröryggisráðs að þjóðaröryggisstefnan sem samþykkt var árið 2016 hafi staðið vel fyrir sínu. Í stefnunni er lögð til grundvallar víðtæk nálgun á öryggishugtakið og mikilvægi samhæfingar innan stjórnkerfis þannig að hægt sé að ná fram markmiðum hennar. Þjóðaröryggisstefnan inniheldur víðtækar skilgreiningar á öryggishugtakinu. Meðal þeirra þátta sem stefnan tekur til eru hnattrænir, samfélagslegir og hernaðarlegir áhættuþættir og því má finna í stefnunni meginmarkmið í þjóðaröryggismálum gagnvart utanríkismálum og innanríkismálum. Grundvallarforsenda þjóðaröryggisstefnunnar er staða Íslands sem fámennrar eyþjóðar sem tryggir öryggi sitt og varnir með virkri samvinnu við önnur ríki og alþjóðastofnanir. Eins og fram kemur í greinargerð hefur þjóðaröryggisráð bent á að ógnir og aðrar áskoranir í öryggismálum eru síbreytilegar og flóknari en áður. Má þar helst nefna hraða tækniþróun sem sannarlega getur orðið til góðs en leiðir á sama tíma til margvíslegra áskorana, t.d. í netöryggismálum og varðandi upplýsingaöryggi. Mörg erlend dæmi þar sem aðilar hafa haft óæskileg áhrif á lýðræðislegt ferli sýna mikilvægi þess að við sofnum ekki á verðinum. Því er mikilvægt að þjóðaröryggisstefnan taki mið af þessari þróun og að í upphafsorðum stefnunnar sé tekið skýrt fram að tilgangur hennar sé einnig að tryggja lýðræðislegt stjórnarfar.

Í þessu sambandi er vert að benda á vægi svokallaðra fjölþáttaógna, en undir þær falla aðgerðir þar sem beitt er mismunandi aðferðum með samtengdum og skipulögðum hætti í þeim tilgangi að valda skaða og ná fram markmiðum sem veikja áfallaþol samfélagsins. Þekktustu dæmin eru netárásir, áróðursherferðir, dreifing falsfrétta og beiting málaliða í hernaði, svo eitthvað sé nefnt. Þessi þróun hefur m.a. kallað á aukna árvekni á fleiri sviðum en áður hefur þekkst og aukið vægi fjölþáttaógna á sviði varnarmála af þessu tilefni, m.a. hjá NATO.

Alþingi samþykkti sérstök lög um þjóðaröryggisráð í kjölfar samþykktar þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland árið 2016. Vert er að minna á að þjóðaröryggisráð er samstarfsvettvangur um þjóðaröryggismál og samráðs- og samhæfingarvettvangur um framkvæmd ráðuneyta og stofnana á þjóðaröryggisstefnu sem nú er til endurskoðunar. Hlutverk þjóðaröryggisráðs er jafnframt að meta reglulega ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum og er mikilvægt að í stefnunni verði áréttað að mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum taki til allra málefnasviða stefnunnar.

Þjóðaröryggismál eru þverfagleg og viðfangsefnin oft samofin mörgum samverkandi þáttum. Samvinna og samhæfing verður því að vera leiðarstef í samskiptum okkar við samstarfsríki og á milli stofnana. Því er talið mikilvægt að hnykkja á því í endurskoðun á stefnunni. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Lögð verði áhersla á mikilvægi samvinnu og samhæfingar í stjórnkerfinu á þeim sviðum sem þjóðaröryggisstefnan tekur til og að stjórnvöld taki virkan þátt í norrænni, evrópskri og alþjóðlegri samvinnu hvert á sínu sviði.“

Virðulegi forseti. Mikilvægi norðurslóða hefur aukist undanfarin ár og ljóst að sú þróun mun halda áfram, bæði hvað varðar öryggis- og varnarmál sem og varðandi loftslagsmál. Norðurslóðir eru víðfeðmt svæði og því ber að skoða málefni svæðisins frá víðu sjónarhorni. Í takt við þingsályktun um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða frá árinu 2021 er því lagt til að skerpa á mikilvægi umhverfis- og öryggishagsmuna Íslands á hafsvæðinu umhverfis landið og á norðurslóðum í alþjóðasamvinnu og innlendum viðbúnaði. Þó að helstu öryggismál á hafsvæðinu við Ísland tengist sjávarauðlindinni, siglingaleiðum og landhelgi lúta áhættuþættir m.a. að mengun, sjóslysum, farsóttum og sæstrengjum. Í varnarlegu tilliti hefur Atlantshafsbandalagið á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að tryggja öryggi og varnir á siglingaleiðum yfir Norður-Atlantshaf, hafsvæðið milli Íslands, Grænlands og Bretlands, svokallað GIUK-hlið, og norður í íshaf. Líklegt er að slík þróun muni halda áfram í ljósi þeirra öryggismála sem uppi eru í álfunni.

Þjóðaröryggisstefnan er heildarstefna landsins er varðar þjóðaröryggi. Eins og gefur að skilja tengjast aðrar stefnur, svo sem netöryggisstefna og fleiri, þjóðaröryggi. Í stað þess að kveða á um að tilteknar stefnur sem settar eru af stjórnvöldum séu hluti af þjóðaröryggisstefnu er lagt til að fram komi í þjóðaröryggisstefnunni sjálfri hvaða þættir Alþingi felur ríkisstjórninni að leggja áherslu á. Fer það að mínu mati betur, enda geta stefnur er tengjast einstaka málaflokkum komið til sjálfstætt þótt tengslin við þjóðaröryggi séu ótvíræð.

Talin er ástæða til að ítreka þýðingu mikilvægra innviða í þjóðaröryggisstefnu, enda nauðsynlegt fyrir samfélagið að þeir virki sem skyldi. Varðandi innviðina sérstaklega, herra forseti, er vert að benda á þá breytingu sem gerð hefur verið, með leyfi forseta, og segir:

„Að stuðlað verði að vernd og órofa virkni mikilvægra innviða og styrkingu áfallaþols samfélagsins gagnvart hvers kyns ógnum. Lögð verði áhersla á að tryggja skilvirkan og samhæfðan viðbúnað og viðbrögð til þess að takast á við afleiðingar hvers kyns ógna við líf og heilsu fólks, umhverfi, eignir og innviði. Tekið verði mið af ógnum sem tengjast loftslagsbreytingum, náttúruhamförum, fæðu- og matvælaöryggi, heilbrigðisöryggi og farsóttum.“

Loftslagsöryggi skiptir mjög miklu máli. Loftslagsbreytingar blasa við og það er alveg ljóst að við munum þurfa, ásamt öðrum löndum, að gera gagngerar breytingar á okkar stefnu hvað það varðar. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að auka áfallaþol samfélagsins með skilvirkum og samhæfðum viðbúnaði og viðbragði. Hafa þarf í huga að kerfisbrestur á einu sviði getur haft alvarleg áhrif á virkni annarra þátta og er nærtækasta dæmið rof á aðfangakeðjum í heimsfaraldrinum eða vegna fjarskipta hér innan lands vegna veðurs. Við verðum að greina kerfislæga veikleika og fyrirbyggja að hægt sé að nýta þá til að valda skaða eða misbeita þeim í annarlegum tilgangi.

Virðulegi forseti. Það er staðreynd að loftslagsbreytingar munu hafa verulegar afleiðingar á heimsvísu og leggst á okkar herðar að taka fullt tillit til þeirra eins og ég gat um áður. Áhrifanna verður vart á flestum þeim sviðum er varða áherslur þjóðaröryggisstefnunnar. Í greinargerðinni er sérstaklega nefnt samgönguöryggi, orkuöryggi, matvælaöryggi og fæðuöryggi og samfelld virkni þýðingarmikilla innviða samfélagsins. Einnig er vert að benda á súrnun sjávar sem rekja má til losunar gróðurhúsalofttegunda og aukins styrks koltvísýrings í andrúmsloftinu.

Það er óumflýjanlegt að nefna netöryggi sérstaklega í þessari umræðu um þjóðaröryggisstefnu. Net- og upplýsingaöryggi er þverfaglegt viðfangsefni og er notkun á stafrænni samskiptatækni, svo sem samfélagsmiðlum, ein sú mesta í heimi hér á landi og fer vaxandi. Mikilvægir innviðir landsins eru í sívaxandi mæli sjálfvirkir og samtengdir. Einnig fara verslun og viðskipti í auknum mæli fram í gegnum netið, sem vissulega er jákvæð þróun en kallar á auknar kröfur um öryggi fjarskiptaneta og upplýsingakerfa. Fyrirtæki og einstaklingar hafa ekki farið varhluta af netárásum og stafrænum innbrotum og hafa í netöryggisstefnu fyrir Ísland verið sett markmið og áherslur til að efla netöryggi alls samfélagsins. Vil ég ítreka mikilvægi þess að horft sé til samráðs stjórnvalda og einkaaðila í því sambandi.

Virðulegi forseti. Grunngildi okkar hér á landi vega þungt í viðhorfum okkar um frjálst lýðræðissamfélag og virk samskipti við vinalönd. Öryggis- og varnarmál eru á málefnasviði utanríkismálanefndar og eiga allir stjórnmálaflokkar á þingi þar sæti eða áheyrnarfulltrúa. Eftir að þjóðaröryggisráð tók stefnuna til endurskoðunar var hún lögð fram af forsætisráðherra sem fer fyrir ráðinu samkvæmt lögum. Hefur utanríkismálanefnd haft stefnuna til umfjöllunar og kallað til sín fjölda gesta og farið vandlega yfir málið. Góðar athugasemdir bárust nefndinni vegna endurskoðunar sem heilt yfir voru jákvæðar. Allir gera sér grein fyrir því að þjóðaröryggi er án efa eitt veigamesta hlutverk stjórnvalda á hverjum tíma, m.a. var velt upp í umsögn hvort tímabært væri að fela Landhelgisgæslunni lögbundið hlutverk á sviði varnarmála landsins en í dag sinnir Gæslan varnartengdum verkefnum með samningi við utanríkisráðuneyti og fara þau verkefni vaxandi. Gæslan sinnir öryggis-, eftirlits-, björgunar- og löggæsluhlutverki á hafsvæðinu og fylgist með athöfnum og umferð um lögsögu í lofti og á sjó. Landhelgisgæslan annast einnig mengunarvarnir og eftirlit á grundvelli sérstaks þjónustusamnings þar um. Hlutverk Gæslunnar er því gríðarlega víðtækt.

Í umsögn Bændasamtaka Íslands kom fram ánægja með að orkuöryggi væri sett inn í þjóðaröryggisstefnuna, sem jafnframt er stór þáttur í að hægt sé að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Vísa samtökin í nýlega skýrslu starfshóps um neyðarbirgðir og þær áskoranir sem blasa við til að tryggja fæðuöryggi á Íslandi. Eins og kom vel fram hjá framsögumanni og formanni utanríkismálanefndar, hv. þm. Bjarna Jónssyni, þá leggur nefndin til breytingar þar sem aukin áhersla er lögð á varnir landsins með því að bæta við fyrsta hluta stefnunnar. Í nefndaráliti kemur einnig fram að nefndin leggi áherslu á grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins í því sambandi. Hins vegar flytur nefndin breytingartillögu þar sem texti inngangsorða um stöðu Íslands sem fámennrar eyþjóðar er umorðaður og einfaldaður, og tel ég það til bóta. Eins og áður hefur komið fram féll út eitt orð, það er reyndar mjög veigamikið — loftslagsbreytingar — sem nefndin sannarlega gerir breytingar á og setur aftur á sinn stað.

Herra forseti. Stafrænt fullveldi hefur verið nefnt í þessari umræðu oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og vert að taka fram að stafrænt fullveldi gengur út á það að við tryggjum hér innviði, varaleiðir og þrautavaraleiðir ef neyðarástand skapast. Ég tel til mikilla bóta að slíkt sé sett inn í þjóðaröryggisstefnuna og því haldið á lofti, enda um veigamikinn þátt að ræða.

Að lokum vil ég þakka nefndarmönnum og starfsmönnum í þjóðaröryggisráði og utanríkismálanefnd fyrir gott samstarf og vænti þess að breið samstaða verði um endurskoðaða þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland hér á Alþingi Íslendinga. Kærar þakkir. — Ég hef lokið máli mínu.