þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Frú forseti. Við erum hér saman komin í seinni umræðu um uppfærslu á þjóðaröryggisstefnu. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að þjóðaröryggisstefna lands sé sífellt uppfærð til að takast á við breytta heimsmynd og breytta tíma. Hlutirnir hafa svo sannarlega breyst frá þeim tíma þegar upprunalega þingsályktunin um þjóðaröryggisstefnu var samþykkt. En við getum horft á þá breyttu tíma frá ýmsum hliðum. Við getum að sjálfsögðu horft á þá frá þeim vinkli sem oft hefur verið nefndur hér, út frá varnarvinklinum. Við búum að sjálfsögðu í breyttum heimi. Það er aftur stríð í Evrópu eftir áratugaskeið og í þetta sinn meira að segja aðeins nær okkur en síðasta stríð í Evrópu sem þó orsakaði það á sínum tíma að hingað komu líka flóttamenn. Við lifum við þá breyttu tíma að kalda stríðið, sem við héldum kannski að væri liðið undir lok, var bara að malla þarna. Það hlýnaði aðeins í samskiptum í einhvern tíma en síðan kólnaði það allt aftur og við sjáum hvernig ástandið er í dag.
Það er líka hægt að horfa á þetta út frá öðrum vinklum og við höfum séð samfélag sem er algerlega breytt. Það að tryggja öryggi er ekki lengur það að vera hér einstaka sinnum með einhverjar flugvélar í einhverri lofthelgisgæslu sem er lítið annað en æfingaflug. Það er nefnilega þannig í dag að hægt er að ráðast á okkur án þess nokkurn tímann að stíga fæti hér á land. Þá er ég að tala um netöryggi og netöryggismál. Sem betur fer er tekið betur á því í þessari uppfærslu, enda mikilvægt þar sem margt annað er hægt að gera en að vinna í fjarvinnu. Það er orðið hægt að heyja stríð í fjarvinnu. Við ræðum aðeins betur um það á eftir.
En mig langaði að nefna enn einn vinkilinn og það eru loftslagsmálin, hvernig við höfum algerlega sleppt því að hugsa um það undanfarna áratugi eða jafnvel undanfarna öld, það hvernig við semjum endalaust um einhverja sérhagsmuni og sérákvæði þannig að iðnaðurinn okkar skaðist ekki, af því að iðnaðurinn okkar er svo miklu betri en iðnaðurinn alls staðar annars staðar. Og já, flugið okkar er lengra en annað flug í Evrópu. En það er enn þá að blása út koltvísýringi og þá þurfum við að finna leiðir til að draga úr þeirri losun einhvers staðar annars staðar til að koma til móts við það. En það er ekki bara útblásturinn. Allar þessar loftslagsbreytingar munu hafa stórtæk áhrif á okkar heimsálfu. Það hefur verið bent á það að þó svo að við hættum að dæla koltvísýringi út í andrúmsloftið strax á næsta ári þá munum við hita jörðina að meðaltali um 1,5°C. Það hefur verið bent á að þessar 1,5° eru meðaltalið og hættan er sú að stór hluti lands í kringum Miðjarðarhafið, eða t.d. í suðurhluta Bandaríkjanna, verði hreinlega óbyggilegur. Þar verði margir dagar og margar vikur á hverju sumri þar sem hitastigið fer upp í 50°C og þar sem rakastigið verður þannig að líkaminn getur ekki svitnað til að kæla sig. Þá munum við sjá loftslagsflótta, ekki frá framandi löndum heldur erum við að tala um Evrópu. Við erum að tala um Suður-Evrópu. Þegar við förum að sjá það fólk flýja hingað á norðlægar slóðir — við þurfum líka að búa okkur undir það. Það gerist kannski ekki á næstu tveimur til þremur árum en er svo sannarlega eitthvað sem við þurfum að búa okkur undir á næstu 10–20 árum. Hvernig ætlum við að taka á móti þessu fólki og það verða ekki lengur einhverjar þúsundir heldur jafnvel tugir ef ekki hundruð þúsunda sem þurfa að flýja það loftslag? Já, fólk getur kannski sótt hingað til að flýja hitann en hættan er einnig sú að súrnun sjávar og mengun og annað muni hafa það mikil áhrif á lífríkið að sjávarútvegurinn, ein af okkar uppistöðuatvinnugreinum, hverfi.
Ég nefndi netöryggismálin áðan. Það hefur verið mjög athyglisvert, í umræðunni um þjóðaröryggismálin og í allri umræðu síðan stríðið hófst í Úkraínu fyrir rúmu ári, að mikið hefur verið spurt um öryggi sæstrengjanna okkar. Sannleikurinn er sá að það þarf ekki kafbát eða skip til að klippa í sundur þessa sæstrengi. Það er miklu auðveldara að ráðast á alla okkar innviði en vera samt fjarri. Það er hægt að sitja einhvers staðar á sólarströnd eða vera í Síberíu, eftir því hvar þú vilt vera, og ráðast á alla okkar innviði, hvort sem það eru heimasíður stofnana, raforkukerfið okkar, fjármálakerfið okkar nú eða, eins og einn hv. þingmaður nefndi hér áðan, stjórnmálakerfið, kosningarnar, upplýsingarnar, til að skapa upplýsingaóreiðu. Það er hægt að ráðast á alla þessa þætti án þess nokkurn tímann að setja fótspor í sandinn á Íslandi. Þetta er það umhverfi sem við lifum í og þarna þurfum við að vera viðbúin, ekki ef heldur þegar slíkar árásir gerast.
Við þurfum líka að hafa í huga að hagkerfið okkar virðist alltaf vera byggt á því að vera með einhverja örfáa þætti sem halda uppi samfélagi okkar. Einu sinni var það bara sjávarútvegurinn. Einu sinni ætluðum við að verða fjármálamiðstöð Evrópu, munið þið eftir því? Í dag er ferðaþjónustan ein af okkar stærstu tekjulindum. En við sáum hversu lítið þurfti til, bara eina litla veiru, til að stöðva alla ferðamennsku í tvö ár. Það er margt annað, alls konar hættur og alls konar orðsporstap sem getur valdið því að ferðaþjónustan, sem að vissu leyti hefur bjargað hagkerfinu okkar frá því að við fórum í gegnum síðustu krísu, getur lent illa í því.
Tökum eitt dæmi. Vísindamenn segja okkur að við séum að ganga í gegnum nýtt tímabil eldvirkni á Reykjanesi en þar í gegn koma allir þessir ferðamenn. Hvað gerist ef það byrjar að gjósa rétt fyrir utan Reykjanes, þar sem við sáum jarðskjálftahrinu fyrir stuttu? Hvað gerist ef það kemur öskugos sem stendur dag eftir dag eða viku eftir viku við Keflavíkurflugvöll? Við höfum ekki byggt upp innviðina til að flytja flugið neitt annað með hraði. Og það er ekki bara Reykjanes, það er aukin virkni í flestum okkar eldfjöllum. Stundum koma gos á þægilegum stað eins og við Fagradalsfjall þar sem þau verða einfaldlega að ferðamannasegli, svo ég noti nú orð úr umræðu um allt önnur mál. Já, stundum draga gosin að sér ferðamenn og þar höfum við einungis verið heppin. Hvað ef þau fara að stoppa ferðamennina? Er hagkerfið okkar tilbúið að takast á við það? Erum við með áætlanir um það hvað við ætlum að gera þá?
Svona stefna er góð sem fallegt lítið plagg. En það er ekki nóg að vera með fallega stefnu ef ekki eru til áætlanir, og í sumum tilvikum viðbragðsáætlanir, um það hvað við ætlum að gera ef eitthvað af þessu fer að gerast. Hv. þm. Logi Einarsson nefndi það hér áðan að það væri einmitt næsta skrefið hjá okkur að fara í gegnum þessi atriði og tryggja að við værum tilbúin að takast á við þessa hluti. Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur einmitt oft nefnt að ekki sé alveg á hreinu hvernig eigi t.d. að takast á við hluti tengda varnarmálunum. Hver tekur ákvarðanir? Hvar gerast hlutirnir? Þetta þurfum við að ræða og ekki bara í varnarmálunum heldur í loftslagsmálunum, netöryggismálunum og öllum þessum málum. Þessir hlutir munu nefnilega gerast í einhverri mynd. Það verða netárásir á Íslandi, ég get alveg lofað ykkur því. Það verða kannski ekki einhverjar ríkisstjórnir úti í heimi heldur kannski bara einhverjir krakkar uppi í sófa, eins og stundum er sagt, að leika sér og sjá hvað þau geta tekið niður mörg ráðuneyti í einhverju landi.
Svo eru það loftslagsmálin. Þó að við reynum að lifa í þeirri trú að það gerist ekkert á Íslandi þá munum við finna fyrir þessu. Það er ekki nóg fyrir okkur að vera búin að hugsa út í það hvað við ætlum að gera, vera með á staðreyndirnar á hreinu, við þurfum líka að fjármagna þær stofnanir og þá þætti sem eiga að sjá um þetta. Hér átti t.d. bara að losa sig við eitt stykki flugvél um daginn af því að það var ágætispennastrik í excel-leikfimi í einhverju ráðuneyti. Það var öllum sama um það að þessi vél gæti varið okkur fyrir herskipum eða látið okkur vita um herskip eða njósnaskip frá Rússlandi stímandi inn í landhelgina eða að hún gæti gefið okkur upplýsingar um mögulegt eldgos eða ástand á eldgosi einhvers staðar. Við verðum að hugsa hlutina frá öllum hliðum. Ef það kostar peninga að gera þessa hluti þurfum við að finna það fjármagn. Það er nóg til af fjármagni, það þarf kannski að skipta því aðeins öðruvísi og forgangsraða því aðeins öðruvísi.
Frú forseti. Þegar ég fór á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi höfðu einhverjir snillingar, ég vil kalla þá snillinga vegna þess að þetta var góð hugmynd hjá þeim, keypt auglýsingu á hvern einasta ljósastaur í Sharm El Sheikh. Auglýsingin var mjög einföld. Á henni stóð á íslensku: Metnaður er góður, en við þurfum aðgerðir. Mig langar að ljúka umræðu minni um þessa þjóðaröryggisstefnu á sama máta. Hér er mikill metnaður, við erum sammála að mestu leyti um flest sem hér er. Nú þurfum við að halda áfram að vera sammála og við þurfum að halda áfram þeirri vinnu sem þetta er einungis upphafið að. Við þurfum að setja fjármagn og vinnu í áætlanir, aðgerðir og framkvæmdir.