153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[18:29]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem var um margt fróðlegt. Ég tek undir það sem hún sagði. Hv. þingmaður er með breytingartillögu við þessa tillögu um breytingu á þjóðaröryggisstefnunni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Að vinna að sérstakri varnarstefnu fyrir Ísland sem byggist á þeim forsendum sem fram koma í þjóðaröryggisstefnu þessari. Varnarstefnan leggi grunn að og skýri fyrirkomulag stjórnsýslu, framkvæmd, ábyrgð og fjármögnun varnarmála Íslands. Varnarstefnan verði á ábyrgð utanríkisráðuneytisins.“

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er þetta sambærilegt og á öðrum Norðurlöndum eða er einhver fyrirmynd þarna sem verið er að horfa til? Þetta er þá væntanlega stefna sem er undir þjóðaröryggisstefnunni, við erum náttúrlega með varnarstefnu og svo erum við með stefnu varðandi netöryggismál og annað slíkt. Þetta þarf náttúrlega að tóna við varnarstefnu NATO og vera í samstarfi við Bandaríkin sem eru með varnarsamninginn. Hvernig sér hv. þingmaður það flæði fyrir sér varðandi íslenska varnarstefnu fyrir Ísland og samspilið við varnarstefnu NATO, Atlantshafsbandalagsins, og svo varnarsamninginn við Bandaríkin? Við erum herlaus þjóð og við erum þá að móta stefnu sem væntanlega þarf til að verja landið — það eru mörg ríki með her, það er hluti af fullveldi þjóða að geta varið sig. Við höfum ekki her út af smæð og fámenni og öðru slíku. Hvernig á varnarstefnan að tóna við varnarsamninginn og stefnu Atlantshafsbandalagsins? Þarf þá ekki samstarf við Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin við mótun þessarar stefnu? Við förum varla að gera þetta algerlega ein þar sem við erum herlaus þjóð.