þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Herra forseti. Þær breytingar sem hér eru lagðar til í endurskoðaðri þjóðaröryggisstefnu eru jákvæðar. Mikilvæg skref eru stigin í málefnum eins og loftslagsbreytingum, orkuskiptum og orkuöryggi sem síðan lýtur aftur að fæðuöryggi þjóðarinnar. Innviðir eru teknir fyrir í stefnunni með skýrari hætti og það er jákvætt. Það er mikilvægt að hafa í huga að þjóðaröryggisstefnan er ekki útfærsla á einstökum aðgerðum, hún leggur línurnar og áhersluþættina. Það er síðan þjóðaröryggisráð sem er samhæfingaraðilinn og síðan eru það ráðuneytin sem bera ábyrgð á framkvæmd stefnunnar í sínum málaflokkum.
Við Íslendingar höfum sérstöðu meðal vestrænna þjóða þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Ísland hefur ávallt verið herlaus þjóð, þjóð án vopnaframleiðslu, en er í varnarbandalagi sem byggir á hernaðarlegum grunni og í því felst að sjálfsögðu sérstaða. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna og aðildin að Atlantshafsbandalaginu eru grundvallarþættir í samþykktri þjóðaröryggisstefnu Íslands. Við eigum allt okkar undir í þessu samstarfi. Þess vegna verðum við að tryggja að hér sé ávallt sá viðbúnaður til staðar sem þarf ef hingað yrði kallaður til herafli á ófriðartímum. Þetta er grundvallaratriði. Við þurfum auk þess að auka þekkingu þeirra íslensku starfsmanna sem starfa að málaflokknum og íslenskir starfsmenn verða að öðlast þekkingu, reynslu og innsýn sem nýtist í verkefnum, æfingum og stefnumörkun hér heima fyrir. Þannig eykst okkar eigin geta og sérfræðiþekking í öryggis- og varnarmálum á Íslandi. Með því að kosta sérfræðinga til starfa er stutt við starf bandalagsins og um leið öðlumst við mikilvæga reynslu.
Við sem herlaus þjóð höldum úti afmörkuðum varnarviðbúnaði og fyrst og fremst í tengslum við samvinnu við Atlantshafsbandalagið og á grunni tvíhliða varnarsamnings við Bandaríkin. Aukin framlög íslenska ríkisins og Atlantshafsbandalagsins til framkvæmda hér á landi hafa aukið öryggis- og varnarviðbúnaðargetu landsins.
Herra forseti. Ég tel að við eigum að viðhafa virkari þátttöku í störfum Atlantshafsbandalagsins. Við eigum að auka fjárveitingar hvað þetta varðar, auka sérfræðiþekkingu okkar eigin fólks á þeim sviðum þar sem Ísland getur með borgaralegu framlagi lagt sitt af mörkum. En hver er öryggisímynd okkar Íslendinga? Merking öryggishugtaksins hefur breyst á skömmum tíma. NATO og þróun bandalagsins í átt til borgaralegrar nálgunar á öryggismálum gefur okkur aukin tækifæri, aukin tækifæri fyrir herlausa þjóð sem er í mikilvægu varnarsamstarfi við Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin. Þær breytingar auka hugsanlega möguleika Íslands sem smáríkis til að leggja sitt af mörkum og styrkja með því stöðu sína innan bandalagsins. Því má velta fyrir sér hvort umræðan um öryggis- og varnarmál hafi verið nægilega djúp hér á landi. Innrás Rússa í Úkraínu, innrás inn í sjálfstætt fullvalda ríki í Evrópu, breytti öryggismálum í álfunni til framtíðar. Þessi einstaki atburður á okkar tímum kallar að sjálfsögðu á umræðu og við honum er verið að bregðast, m.a. með því að leggja fram breytingar á þjóðaröryggisstefnunni.
Stríðið er okkur þörf ábending um mikilvægi varnarsamstarfsins við Bandaríkin og veru okkar í varnarbandalaginu NATO og þess vegna verðum við að sjá til þess að við uppfyllum ávallt okkar skuldbindingar hvað þetta varðar. Höfum hugfast að hlutleysi veitir enga vörn. Þó svo að það sé vissulega göfugt markmið þá veitir það enga vörn. Úr fræðasamfélaginu hefur komið gagnrýni á þann veg að hin nýja tillaga að þjóðaröryggisstefnu Íslands taki ekki mið af auknu hernaðarlegu mikilvægi Íslands. Þessu er ég ósammála. Hernaðarlegt mikilvægi Íslands hefur ekkert breyst. Það er mikilvægt og hefur verið mikilvægt. Það er hið sama og það hefur verið og það er áfram mikilvægt. En við höfum kannski ekki gefið því nægjanlegan gaum, sérstaklega eftir brotthvarf varnarliðsins. Við höfum tekið virkan þátt bæði á vettvangi Atlantshafsbandalagsins en líka í samstarfi Evrópuþjóða í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Það á einnig við um viðskiptaþvinganir.
Herra forseti. Ísland er friðsamt land og það friðsamasta í heimi samkvæmt svokölluðu Global Peace indexi, ef má nota erlenda tungu, en í því felast tækifæri Íslands. Ég hef sagt það hér oftar en einu sinni úr þessum ræðustól að Ísland hefur alla burði til þess að vera friðflytjandi á alþjóðavettvangi og málamiðlari. Það lýtur ekki síst að því að við erum herlaus þjóð, eins og áður segir, við erum þjóð án vopnaframleiðslu, sem hefur skapað okkur traust á alþjóðavettvangi þegar kemur að þessum málum, friðarmálum, og aðalritari Sameinuðu þjóðanna sagði fyrir ekki svo löngu síðan að Ísland nyti mikils trausts á alþjóðavettvangi. Þess vegna segi ég það hér að í þessu felast tækifæri fyrir Ísland sem við eigum gefa meiri gaum og nýta.
Þá komum við að spurningunni hvort Ísland sé vel varið nú þegar við horfum upp á það að ráðist er inn í fullvalda og sjálfstæða þjóð í Evrópu. Ég tel svo vera. Ég tel að Íslands sé vel varið. Hér er öflugt loftvarnakerfi sem samanstendur af ratsjám, fjarskiptastöðvum og stjórnstöð í Keflavík sem er beintengd við stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins í Þýskalandi. Það er búið að gera margt eftir brotthvarf varnarliðsins og margt er í pípunum. Má þar nefna viðhald og nýframkvæmdir á gamla varnarsvæðinu og nú hillir í að það verði boðnar út framkvæmdir við birgðaaðstöðu varnarliðsins, þ.e. Bandaríkjamanna, komi til ófriðar og hingað þurfi að flytja birgðir. Það er stöðugt verið að endurmeta aðstöðuna á gamla varnarsvæðinu og það er jákvætt og ánægjulegt. Umfang kafbátaeftirlitsins hefur verið aukið umtalsvert og það er á vegum Bandaríkjamanna og það er ekki að ástæðulausu. Sú aðstaða sem leitarvélar þurfa á Keflavíkurflugvelli vegna eftirlitsins hefur verið bætt. Umferð kafbáta í kringum landið hefur aukist nokkuð og við höfum brugðist við því með auknu kafbátaeftirliti. Við höfum bætt netöryggismálin, fjarskiptaöryggi við útlönd og upplýsingaöryggi. Síðan má alls ekki gleyma því að Keflavíkurflugvöllur er mjög mikilvægur í varnarsamstarfinu. Það má sama segja um Helguvíkurbirgðastöðina. En við þurfum, eins og við vitum öll, að reiða okkur á okkar helstu samstarfsþjóðir í þessu verkefni og þess vegna er brýnt að við mætum þeim kröfum sem okkur ber að fylgja varðandi viðbúnaðinn hér heima, viðhalda varnarmannvirkjum o.s.frv., til þess að við séum reiðubúin að taka við aðstoðinni ef við þyrftum á henni að halda á ófriðartímum og við stæðum frammi fyrir ógn við öryggi landsins.
Því hefur verið varpað fram í umræðunni, einkum af hálfu Viðreisnar, að skoða eigi fasta viðveru herliðs hér á landi. Ég tel ekki þörf á því að hér verði föst viðvera landhers. Síðast var hér landher á vegum Bandaríkjahers árið 1960. Ég sé ekki að við búum við þá ógn sem kalli á slíkan viðbúnað. Ef Rússar ætla sér að ásælast Ísland myndu þeir væntanlega skjóta stýriflaugum úr kafbátum í allt að 3.000 km fjarlægð. Það hafa þeir verið að gera í Úkraínu, þeir hafa verið að skjóta eldflaugum frá Svartahafi þvert yfir Úkraínu og alla leið til borgarinnar Lviv sem er nálægt landamærunum við Pólland. Þeir sem ég hef rætt við sem þekkja vel til þessara öryggismála eru sammála um að þetta yrði sú aðferð sem yrði beitt, sem vonandi verður náttúrlega aldrei. Það eru loftvarnasveitir og loftvarnir sem við eigum að leggja áherslu á og þar höfum við varnarsamninginn við Bandaríkin og eftirlit með umferð í og á hafinu. Þetta eru þeir þættir sem skipta okkur mestu máli. Bandaríkin eru skuldbundin til að senda okkur loftvarnasveitir verði ráðist á landið. Það felur hinn ágæti og mikilvægi tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin í sér. Eins og ég nefndi hér áðan hefur kafbátaeftirlitið verið aukið og aðstaðan á Keflavíkurflugvelli bætt og enn er unnið að endurbótum hvað þetta varðar.
Ég tel hins vegar að það hafi verið afturför, herra forseti, þegar Ísland var tekið úr svokölluðu NORAD-loftvarnakerfi upp úr aldamótunum og tengdist það minnkandi starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og síðan brotthvarfi þess. NORAD-kerfið er samstarf milli loftvarna Bandaríkjanna, og þar með talið Alaska, og síðan Kanada. Við vorum hluti af þessum rekstri, þetta er stórt og öflugt kerfi. Það var okkur styrkur að vera þátttakendur í því. Við vorum lítil eining í stórri einingu og það var vel hugsað um okkur. Auk þess væri æskilegt að Noregur væri þarna einnig inni því það myndi girða línu frá Norður-Noregi inn í Kyrrahafið. Ég tel, herra forseti, að við eigum að óska eftir því við Bandaríkin að fá að tengjast þessu kerfi á ný og ég mun reifa málið á komandi fundi utanríkismálanefndar í Washington núna í lok mars, mikilvægum fundi nefndarinnar. En það er að sjálfsögðu einnig mikilvægt að vera hluti af evrópska kerfinu og stjórnstöðinni í Þýskalandi eins og við erum.
Að lokum, herra forseti, þá fagna ég þeim breytingum sem hér stendur til að innleiða í þjóðaröryggisstefnu. Þær eru tímabærar og ég styð þær heils hugar.