153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[20:08]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta er bara hluti af því sem þarf að taka fyrir í vinnu um varnarstefnu, hvernig við setjum svona fram, hvað felist í því, hvaða fælingarmátt það hefur í för með sér. Er til hagsbóta að hafa þetta svona eða er betra einfaldlega að segja: Það er hér viðvarandi vera herliðs óháð því hvort viðkomandi hermaður er hér í tvo daga, tvær vikur eða tvö ár? Þetta er hluti af þessari hálfvelgju sem mér finnst einkenna nálgun ríkisstjórnarinnar á þjóðaröryggismálin. Hv. þingmaður talaði um það í ræðu sinni líka, sem ég held að sé rétt, að fólk hafi verið að grauta öllum hlutum saman inn í þjóðaröryggisstefnu. Ég held það hafi verið tekin hárrétt ákvörðun 2016 um að víkka þjóðaröryggið út, láta það taka til netöryggis, fjarskipta, matvælaöryggis, loftslagsmála, mjög mikilvægt, ekki síst loftslagsmála og fleiri þátta. En síðan 2016 — nú sjáum við þessa tillögu frá ríkisstjórninni og hvað er það sem setið hefur á hakanum? Ekki almannaöryggið á þessum sviðum, við erum að taka ákveðin skref þar. Ekki gert 100% en við erum samt að taka ákveðin skref þar. En að mínu mati þá sitja varnir landsins eftir af því að það er verið að grauta öllu saman, m.a. út af viðkvæmni innan ríkisstjórnar, varnir landsins eru vanræktar í stefnunni. Þess vegna er mikilvægt að grunnstefnan sé komin inn og það er mikilvægt að orðið varnir sé alla vega komið inn í 1. tölulið, minnir mig að það hafi verið. En það er bara ekki nóg. Það þarf að vinna varnarstefnu út frá því umhverfi sem við búum við núna. Ein mesta ógn eftir síðari heimsstyrjöld blasir við okkur núna í Evrópu en ríkisstjórnin höndlar varnarhlutverkið og varnarstefnuna á ákveðinn svona mélkisulegan hátt og mér fellur það ekki.