þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Frú forseti. Þó að það sé ekki berum orðum talað um varnarstefnu í þjóðaröryggisstefnunni þá mætti leiða líkum að því að hún sé til staðar, við bara fáum ekki að sjá hana. Einhver, á einhverjum forsendum, ákvað að styðja áform Bandaríkjamanna um rosalega uppbyggingu aðstöðu á Keflavíkurvelli. Einhver einhvers staðar á einhverjum forsendum ákvað að vera til í að hleypa inn mörg hundruð hermönnum á hverjum degi, allt árið um kring, til að sinna ýmsum verkefnum. Þetta er allt varnarstefna í praxís. Vandinn er að þær ákvarðanir sem búa þarna að baki, sú stefna eða þau stefnuplögg sem þetta væntanlega byggir á, liggja hvergi frammi. Það er varnarstefna í praxís en hún hefur ekkert verið rædd hér á þingi né heldur höfum við einhvern tímann séð hana skrifaða út, öðruvísi en það sem við náum að þefa uppi af auknum umsvifum og breytingum á viðveru á Keflavíkurvelli. Það er náttúrlega engin leið til að reka neina opinbera stefnu að gera það í skugganum, gera það í lokuðum og læstum umræðum þjóðaröryggisráðs sem trúnaðarins vegna má ekki segja neitt frá fundum sínum. Nú er ég aftur kominn í það sem ég var að hugsa upphátt í upphafi ræðu minnar, að ég hef áhyggjur af því að öll góðu málin sem er búið að bæta inn í þjóðaröryggisstefnu gætu farið að smitast af þessari leyndarhyggju. Það væri ekki gott. Lýðræðislegt samfélag kallar á opið samtal um allt sem við gerum.