þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Herra forseti. Við búum í heimi þar sem öryggisógnir eru síbreytilegar og margvíslegar og það er mjög mikilvægt að sú þjóðaröryggisstefna sem við byggjum á byggi á breiðum grunni. Það var niðurstaðan þegar slík stefna var fyrst samþykkt hér á Alþingi Íslendinga 2016 og það var mat þjóðaröryggisráðs þegar við hófum undirbúning að endurskoðun hennar, að hún hefði reynst vel og verið okkur drjúgt tæki til þess að takast á við margvíslegar ógnir, hvort sem er á sviði netöryggis, fjármálaöryggis, umhverfisógna, almannavarna, nú eða hefðbundinna hernaðarógna. Ég hef skilið umræðuna hér í þessum sal svo að um stóru línurnar ríki breið samstaða jafnvel þó að áherslumunur sé á milli hv. þingmanna í ólíkum flokkum. Það er eðlilegt. En ég legg á það mikla áherslu, og vil nota tækifærið hér til að þakka hv. utanríkismálanefnd, að við samþykkjum þessa stefnu, sem hefur reynst okkur vel, með mikilvægum breytingum og nýtum hana sem vegvísi fram á við fyrir Ísland.