153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[13:39]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um endurskoðaða þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Ég tel að vel hafi til tekist og vil þakka öllum þeim sem að vinnunni komu. Sérstaklega vil ég þakka þjóðaröryggisráði og utanríkismálanefnd samstarfið og þeim gestum sem fyrir nefndina komu. Veigamesta hlutverk stjórnvalda á hverjum tíma er að tryggja öryggi þjóðarinnar. Þjóðaröryggisstefnan stendur á traustum grunni. Það er mín bjargfasta trú að stefnan sé hornsteinn þjóðaröryggis hér á landi og að þær uppfærslur sem nú verða samþykktar séu til þess fallnar að styrkja enn frekar sameiginlega sýn okkar á þær áskoranir og úrlausnarefni sem við blasa og kunna að mæta okkur í framtíðinni.