þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Virðulegur forseti. Samstaðan í utanríkismálanefnd er mjög mikilvæg og þýðingarmikil og það er mikilvægt að senda þau skilaboð út. En það er líka mikilvægt á þessum tímum að þingið sé staðfast í því að þora að endurskoða varnar- og öryggisstefnu sína þegar allar aðrar þjóðir, vestrænar lýðræðisþjóðir, eru að gera það í dag, allt frá Danmörku, sem hélt þjóðaratkvæðagreiðslu um stöðu sína innan ESB, yfir í Finna, yfir í Svía, yfir í endurmat Þjóðverja á eigin vörnum og hernaðarþátttöku. Þetta höfum við ekki gert samhliða þessari uppfærslu á þjóðaröryggisstefnunni. Það eru mikilvægar uppfærslur á sviði almannavarna innan þjóðaröryggisstefnunnar, ekki spurning, við stöndum með því. En ég hefði kosið að sjá það að við hefðum þorað að taka þetta hlutverk saman, að fela utanríkisráðherra að móta nýja varnarstefnu í samvinnu við þingið. Ég vona það, af því að það hefur svolítið verið sá háttur á að ríkisstjórnin tekur upp góðar tillögur frá stjórnarandstöðunni, að ríkisstjórnin taki þá síðar upp þessa stefnu.