153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[13:43]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég fagna því að hér sé verið að uppfæra þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Það kemur kannski ekkert sérstaklega á óvart að ekki hafi verið mikið tekið á varnarmálaþættinum í ljósi þeirra fyrirvara sem gerðir voru við þá stefnu sem hefur verið í gildi undanfarin ár.

Mig langaði til að koma hingað upp sérstaklega í tengslum við e-liðinn þar sem fjallað er um loftslagsmál og lögð megináhersla á virka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi til að bregðast við loftslagsbreytingum, eins og segir í greinargerð um e-liðinn:

„Þar sem loftslagsbreytingar eru hnattrænt vandamál skiptir miklu máli að stjórnvöld taki virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi til að bregðast við þeim.“

Þetta væri gott og gilt ef stjórnvöld hefðu ekki sérstakt lag á að reyna, annaðhvort með sofandahætti eða meðvitað, að teyma þjóðina og þá sem standa í rekstri út í mýri í hverju loftslagsmálinu á fætur öðru, síðast í því sem blasir við okkur varðandi stóralvarlega stöðu í alþjóðaflugi. Við í þingflokki Miðflokksins höfum því óskað eftir því að sérstaklega verði greidd atkvæði um e-lið þessarar þingsályktunartillögu (Forseti hringir.) en styðjum tillöguna að öðru leyti heils hugar.