þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Virðulegi forseti. Hér er um slæma breytingu að ræða. Hún er ekki nógu góð. Orðalagið er ekki nógu gott. Orðalagið sem er fyrir er miklu betra. Hér er verið að breyta því sem segir í dag í þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, með leyfi forseta:
„Grundvallarforsenda stefnunnar sé staða Íslands sem fámennrar eyþjóðar sem hvorki hefur burði né vilja til að ráða yfir her …“
Það á að fella þessi orð út: „fámennrar eyþjóðar sem hvorki hefur burði né vilja til að ráða yfir her“, og í staðinn á að taka inn orðalagið „herlaust land“. Það er miklu betra að segja að við séum fámenn þjóð sem hvorki hefur burði né vilja til að ráða yfir her en að hafa orðalagið „herlaust land“. Ef það á að vera herlaust land þá er miklu betra og réttara að tala um „herlausa þjóð“. Það er meira að segja rangt að segja „herlaust land“, það á að segja „herlaus þjóð“. Núverandi orðalag er miklu betra. Við erum fámenn eyþjóð sem hefur hvorki burði né vilja til að hafa her. Það skiptir engu máli hvað við segjum annað í þjóðaröryggisstefnunni, við erum fámenn eyþjóð. Ég segi nei.