þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Virðulegi forseti. Þessi tillaga felur í sér að utanríkisráðherra verði falið að móta sérstaka varnarstefnu fyrir Ísland, ekki síst á grundvelli þess umhverfis sem við búum við í dag, og það verði gert í samráði við utanríkismálanefnd. Meðal annars verði farið í að skýra fyrirkomulag, stjórnsýslu, framkvæmd, ábyrgð og fjármögnun varnarmála Íslands. Þetta vantar allt í þjóðaröryggisstefnuna. Ég vil endurtaka það sem ég hef áður sagt: Það er umhugsunarefni að samsetning ríkisstjórnarinnar komi í veg fyrir að þessi tillaga verði samþykkt. Við sjáum það á rauðu tökkunum hér að bæði þingmenn Sjálfstæðisflokksins — ég vil gjarnan hvetja formann Sjálfstæðisflokksins til að leyfa sínu liði að vera pínulítið lausbeislað í þessari atkvæðagreiðslu því að hér verða bæði hjarta og kaldur kollur að fylgja með og þá ýtir maður náttúrlega á græna takkann. Ég hefði líka haldið að Framsóknarflokkurinn með sína sögu, þó tvískiptu sögu, myndi einmitt styðja þessa tillögu. En svo er ekki. Vinstri græn, þar kemur ekkert á óvart. (Forseti hringir.) En ég hefði gjarnan viljað sjá þessari tillögu fylgt eftir hér og að hún yrði samþykkt en vona eindregið að utanríkisráðherra taki hana upp síðar.