þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Herra forseti. Friðlýsing Íslands fyrir kjarnavopnum er eitt af því besta í þjóðaröryggisstefnunni og hér legg ég til að taka burt þessa sérstöku tilvísun til þess að alþjóðlegar skuldbindingar ráði því hvort Ísland friðlýsir sig fyrir kjarnavopnum eða ekki. Það orðalag gefur til kynna að okkur sé það ekki frjálst og sé svo þá hefur þetta ákvæði stefnunnar bara ekkert inntak. Hérna er sem sagt lagt til að taka þá vísun burt og jafnframt að færa orðalagið nær því sem Sameinuðu þjóðirnar nota varðandi kjarnorkuvopnalaust svæði og hins vegar er hér lagt til að skilgreina íslenskt yfirráðasvæði með skýrari hætti þar sem Ísland og íslensk landhelgi nær ekki alveg yfir það sem lögfræðingarnir myndu vilja að það næði yfir.