153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[13:54]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessum tillögum vegna þess að ég tel að þessum málum, þ.e. friðlýsingu Íslands og landhelginnar, sé ágætlega fyrir komið í gildandi þjóðaröryggisstefnu. Ég myndi hins vegar mjög gjarnan vilja sjá frumvarp til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja samþykkt hér á Íslandi þar sem þessi stefna sem er í þjóðaröryggisstefnunni er útfærð nánar í lögum. Ég greiði ekki atkvæði með þessari breytingartillögu enda er fjallað um friðlýsingu Íslands í þjóðaröryggisstefnunni.