153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[13:55]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hér við fyrri umræðu þessa máls kom fram hjá hæstv. forsætisráðherra að mögulega geti hafréttarsáttmálinn staðið í vegi þess að íslenskt hafsvæði sé friðlýst fyrir kjarnavopnum. Þess vegna er hér lögð fram varatillaga sem felur í sér að eingöngu íslenskt landsvæði sé friðlýst fyrir kjarnavopnum og aftur án einhverrar undanþágu ef alþjóðlegar skuldbindingar leyfa okkur það ekki. Eftir því sem ég best veit þá hefur enginn alla vega sagt upphátt að t.d. einhver eins og NATO banni okkur að segja að það megi ekki vera kjarnavopn á Íslandi. Eða er það misminni hjá mér? Af hverju getur þjóðaröryggisstefna Íslands ekki sagt: Á íslenskri grundu verða aldrei kjarnavopn? Það stendur ekkert í henni núna og þessum málum er ekki vel fyrir komið í þjóðaröryggisstefnunni. Hún er ekki skýr með þetta. Hér er lagt til að hún verði skýr og afdráttarlaus og í samræmi við það sem fulltrúar Vinstri grænna segja að standi í stefnunni, en stendur ekki í henni.