þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Forseti. Allt er þá þrennt er. Því miður virðist fólk ekki hafa skipt um skoðun. Hér er bara langeinfaldasta útfærsla þess að segja að Ísland sé friðlýst fyrir kjarnavopnum. Punktur. Engar alþjóðlegar skuldbindingar, ekkert rugl um að það sé möguleiki á því að það megi koma með kjarnavopn til Íslands. Hér sagði hæstv. forsætisráðherra við fyrri umræðu málsins að það standi ekki til að setja kjarnavopn á Ísland frekar en fyrri daginn. Ef það stendur ekki til, af hverju má það þá ekki standa í stefnunni? Af hverju er verið að greiða atkvæði gegn því að skrifa í þjóðaröryggisstefnu að á Íslandi megi ekki staðsetja kjarnavopn? Í alvöru, krakkar, hvað er að? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)