153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[13:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. E-liðurinn gengur út á að styrkja og undirbyggja enn frekar skyldur íslenskra stjórnvalda til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi til að bregðast við loftslagsbreytingum. Staðan sem uppi er núna er sú að íslenskum stjórnvöldum virðist ekki treystandi til að sinna þessari vinnu. Svo að við tökum nú bara það dæmi sem nú blasir við okkur, yfirvofandi skattlagningu á alþjóðaflug sem mun rústa tengiflugi til og frá Íslandi, þá virðast ráðherrar ríkisstjórnarinnar með einhverjum hætti hafa sofið þannig á verðinum á fyrri stigum málsins að núna berst bréf, svarbréf til hæstv. forsætisráðherra frá Ursulu von der Leyen, með þannig innihaldi að ráðherrann treystir sér ekki til að birta það. Ég treysti ekki stjórnvöldum, þeim sem við sitjum uppi með núna, til að fara enn lengra inn í þetta alþjóðlega samstarf sem hér er lagt til að verði rammað inn. Þannig að ég mun segja nei við þessari tillögugrein en styð aðrar greinar þingsályktunartillögunnar heils hugar.