þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Herra forseti. Eins og nefnt hefur verið er ágætt að það sé samstaða um mál sem þetta. Þetta atriði varðandi loftslagsbreytingar er jú atriði sem hefði gjarnan mátt nefna en þá hefur maður áhyggjur af því hver túlkunin verður, sérstaklega í ljósi þess hvernig stjórnvöld hafa gengið fram. Það er nefnt að þetta gæti ýtt undir veðurofsa. Það hefur ekki gerst til þessa en það sem við vitum er að dauðsföllum vegna veðurofsa og loftslagstengdra atburða hefur fækkað um 99% á 100 árum. Og hvers vegna er það? (Gripið fram í.) Það er vegna tækniframfara, (Forseti hringir.) vegna þess að menn horfðu til þess að nýta tæknina og horfðu til framfara. Því ættum við frekar að huga að vörnum. Við ættum að huga að tækniframförum og líta þá t.d. til ofanflóðavarna, ef menn hafa áhyggjur af því að skriðuföll muni aukast vegna þessa. Verst er að þetta gæti verið túlkað sem fylgispekt við erlendar stofnanir eins og ríkisstjórnin hefur gert fram að þessu, t.d. með Fit for 55-áætluninni um að beinlínis rústa stöðu Íslands sem millilendingaflugvallar (Forseti hringir.) og því getum við ekki, herra forseti, leyft því að fara inn í þjóðaröryggisstefnu að Ísland muni áfram reka fylgispekt við stofnun sem lítur ekki til íslenskra aðstæðna og gerir okkur erfiðara fyrir (Forseti hringir.) að taka á loftslagsmálunum frekar en hitt og veikir þjóðaröryggi landsins.