153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[14:03]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Já, það er mikilvægt að við sýnum samstöðu í þeirri mikilvægu áætlun sem þjóðaröryggisstefnan er. En ég undirstrika að ég hef ákveðnar áhyggjur af varnarþættinum. Við vitum að árið 2016 samþykktu Vinstri græn ekki þjóðaröryggisstefnuna heldur sátu hjá. Nú greiða þau atkvæði með og það segir mér auðvitað að lægsti samnefnarinn hefur verið tekinn þegar kemur að varnarmálum landsins. Það vantar enn varnarstefnu í þetta plagg. Ég vil hvetja ríkisstjórnina til að sýna frumkvæði og móta varnarstefnu á næsta þingi í samvinnu við utanríkismálanefnd þingsins. Ég segi að sjálfsögðu já við þessari uppfærslu á þjóðaröryggisstefnunni 2016 sem er fyrst og fremst beint að almannavarnahlutanum.