153. löggjafarþing — 70. fundur, 28. feb. 2023.
þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
487. mál
Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði með þessari tillögu þrátt fyrir að það séu atriði í henni sem ég hefði kannski viljað sjá ganga lengra eða vera öðruvísi. En það er mikilvægt, og ég vil bara ítreka það enn og aftur, að það er ekki nóg að vera með metnaðarfulla þjóðaröryggisstefnu. Við þurfum alvöruviðbúnaðaráætlanir, alvöruaðgerðir og alvörufjárveitingar til þess að hún geti staðið undir nafni.