atkvæðagreiðsla um birtingu greinargerðar um Lindarhvol.
Herra forseti. Í síðustu viku lagði ég inn fyrirspurn til hæstv. forseta Alþingis þar sem ósköp einfaldlega er spurt: Hvað kemur fram í greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf.? Hverjar voru helstu athugasemdirnar og hvað gaf til kynna að hlutur ríkisins í Klakka hefði verið seldur á undirverði? Fyrirspurnin hefur enn ekki verið leyfð og hún varðar mál sem einhverra hluta vegna hefur verið mikil leynd yfir. Ég vil fara fram á það við forseta, með vísan til 2. mgr. 57. gr. þingskapalaga, að málið verði borið undir atkvæði hér í þingsal, þ.e. hvort fyrirspurnin skuli leyfð.