153. löggjafarþing — 70. fundur, 28. feb. 2023.
atkvæðagreiðsla um birtingu greinargerðar um Lindarhvol.
Hv. þingmaður verður að hafa í huga að þrátt fyrir þá almennu reglu að birta skuli opinber gögn eru í einstökum lögum sérákvæði sem fela í sér annaðhvort trúnaðarskyldu eða þagnarskyldu. Ein slík grein er í 15. gr. laga um Ríkisendurskoðun sem reynir sérstaklega á í þessu máli. Allar slíkar reglur, sem fela í sér undantekningu frá upplýsingarétti, ef svo má að orði komast, ber auðvitað að skoða í ljósi þeirra mála sem til skoðunar eru hverju sinni.