skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegi forseti. Það að 2. minni hluti hafi komið með athugasemd um mikilvægi erlendra fjárfestinga finnst mér ekki vera það sama og að leyfa einhvers konar skynjun á því að erlendir fjárfestar fari frá borði ef verðið verður hækkað, að þeir í raun ráði verðinu á hlutunum, að þátttaka erlendra fjárfesta verði í raun að höfuðverðmyndandi atriði í sölunni. En gott og vel.
Ég vil snúa mér að öðru atriði í greinargerð meiri hlutans sem snýr að því hvernig var farið að því að meta á hvaða grunni átti að úthluta þessum bréfum, þessum sex frægu viðmiðum sem Bankasýslan notaði til að meta hverjir yrðu skornir niður svo og svo mikið og hverjir yrðu skornir niður á einhvern annan hátt. Nú hefur það komið fram fyrir nefndinni að þó nokkur hluti tilboða kom frá aðilum sem Bankasýslan vissi engin deili á. Þetta voru eignastýringasjóðir fjármálafyrirtækja þar sem nöfn raunverulegra kaupenda komu ekki fram. Þannig vissi Bankasýslan ekki hver var að baki kauptilboðunum. Sömuleiðis hefur Bankasýslan haldið því fram að hún hafi ekki vitað hver stæði að baki Hafsilfri ehf., hún hafi ekki vitað að þarna væri um föður fjármálaráðherra að ræða.
Ég vil því spyrja hv. þingmann: Hvernig var Bankasýslunni fært að meta hvort viðmiðin sem hún átti að fylgja við úthlutun á hlutum í útboðinu hafi verið uppfyllt gagnvart aðilum sem Bankasýslan vissi engin deili á?