skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Ég þakka þessar spurningar einnig. Fyrst um það þar sem talað var um þessi markmið, þar sem það kemur vissulega fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að þau hafi stangast á, þá er það tekið fyrir í áliti meiri hlutans þar sem við tökum undir að það hefði verið heppilegra að gefa ávæning fyrir fram um alla vega svona grófa skiptingu á milli þessara að mörgu leyti misvísandi markmiða. Hins vegar teljum við að það sé algjörlega ómögulegt að ætla að taka eitt atriði, eins og bara hæsta verð, þegar þetta heildarverkefni er þess eðlis að það þarf að horfa til margra þátta í einu.
Meiri hlutinn tekur undir að það hefði verið heppilegra að gefa grófa mynd fyrir fram af mati varðandi mismunandi markmið, en eins og kom fram fyrir nefndinni hefði verið ógerningur að niðurnjörva það nákvæmlega fyrir fram.
Að seinna atriðinu sem hv. þingmaður nefnir, varðandi það hvort Bankasýslan hafi vitað nákvæmlega hvaða aðilar þetta væru: Ég held að því sé til að svara að það eru lög í landinu. Í ferli sem þessu mátt þú ekki villa á þér heimildir. Ég held að ef einhverjar vísbendingar eru um að einhverjir séu að villa á sér heimildir fari það auðvitað bara í hinn lagalega farveg réttvísinnar ef ástæða er til. En í svona verkefni, eins og í öllum öðrum verkefnum hins opinbera og í lífinu öllu, þá er auðvitað gert ráð fyrir að fólk fari að lögum og reglum í landinu. Mér að vitandi bendir ekkert til að svo hafi ekki verið gert í þessu máli.