skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Frú forseti. Það er auðvitað ýmislegt sem er ekki fjallað um í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Mér sýnist meiri hlutinn, svona samkvæmt þessu nefndaráliti, eða ég skil það þannig, líta svo á að þegar ríkisendurskoðandi víkur ekki að einhverju í skýrslu sinni þá sé það vegna þess að það séu atriði sem þessi eftirlitsaðili telji ekki aðfinnsluverð og ekki athugunarverð. Þá dettur mér strax í hug eitt sem hvergi er vikið að en maður hefði kannski haldið að samræmdist ágætlega starfssviði Ríkisendurskoðunar að fjalla um, en það eru gjafirnar sem Bankasýsla ríkisins þáði; gjafir, kvöldverður, og var það ekki flugeldur, einn flugeldur frekar en fleiri? Konfektkassar, rándýrir hádegisverðir og hitt og þetta, frá fjármálafyrirtækjum sem höfðu mikla hagsmuni af því hvernig staðið yrði að sölunni.
Þá spyr maður sig: Fyrst ríkisendurskoðandi víkur ekkert af þessu í sinni skýrslu á maður þá að líta svo á að embættið sé að leggja blessun sína yfir þetta? Hvað finnst hv. þingmanni um svona stjórnsýslu, að fólk sem er treyst fyrir því að ráðstafa ríkiseignum sé að þiggja gjafir frá aðilum sem hafa hagsmuna að gæta? Er þetta til eftirbreytni og má bara vænta þess að þetta haldi áfram núna við frekari sölu, að þeir sem koma að sölunni þiggi gjafir? Hvernig væri nú að Alþingi sendi frá sér svolítið skýr skilaboð um að svona viljum við ekki vinna? Ég spyr vegna þess að það er hvergi vikið að þessu í áliti meiri hlutans.