153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[16:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir þessa spurningu. Ef ég skil rétt þá er í rauninni verið að biðja um afstöðu mína til einhvers sem var ekki í skýrslunni þrátt fyrir að hér sé til umfjöllunar skýrsla um ákveðin atriði. Það er gott og blessað. Ríkisendurskoðandi starfar eftir ákveðinni og skýrri lagalegri kríteríu sem er að honum ber að skoða það sem hann er að skoða hverju sinni og athuga hvort það samræmist lögum og honum ber skylda til að tilkynna ef hann metur sem svo að lögbrot hafi verið framin. Það er vissulega rétt að það er ekki á hendi ríkisendurskoðanda að vera í einhverjum lagalegum deilum eða úrlausnarefnum miklum en það er mjög skýrt hlutverk ríkisendurskoðanda að vekja athygli á því ef lög hafa verið brotin. Ég hef sagt það áður, og ég sagði það í ræðu minni rétt áðan, ég tel að það hefði verið heppilegra ef fjallað hefði verið með skýrari hætti um þau atriði sem ríkisendurskoðandi mat sem svo að væru ekki aðfinnsluverð og þar af leiðandi var þau ekki að finna í skýrslunni því að það kallar á þær vangaveltur sem eru hér uppi um hvort ríkisendurskoðandi hafi skoðað tiltekið atvik eða ekki o.s.frv. Ég veit ekki betur og mig minnir, þó að ég sitji ekki í þeirri nefnd, að þetta með gjafirnar hafi sérstaklega verið tekið til umfjöllunar á opnum fundi með Bankasýslunni af hálfu fjárlaganefndar, ef ég man rétt, ég biðst afsökunar ef það er vitleysa hjá mér. Kannski var það efnahags- og viðskiptanefnd en ég held samt að það hafi verið fjárlaganefnd. Mér fannst nú þingið sýna skýra afstöðu sína í því gagnvart stofnuninni um hvernig það vill sjá svona verklag og vinnulag varðandi störf á vegum hins opinbera með ríkiseignir o.s.frv., með tilliti til slíkra gjafa.