153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[16:07]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú sýnist mér að meiri hlutinn líti svo á að þetta Íslandsbankamál sé í raun fullupplýst. Það eru auðvitað ótal spurningar sem brenna enn á manni, en ég verð að velja nokkrar. Það liggur fyrir að Bankasýsla ríkisins kannaði ekkert sérstaklega hverjir stæðu að baki tilboðunum, t.d. þegar tekið var við tilboðum frá eignastýringadeildum fjármálafyrirtækja. Þá velti ég fyrir mér: Hvernig gat Bankasýslan þá metið hvort úthlutun til einstakra aðila uppfyllti þau markmið og viðmið sem koma fram í rökstudda matinu til ráðherra? Hvernig gat hún þá metið áhrifin með tilliti til hinna markmiðanna en ekki forgangsmeginreglunnar um að leita hæsta verðs? Annað: Nú liggur fyrir að flokkun fjárfesta var bara á forræði hvers fjármálafyrirtækis fyrir sig og framkvæmdin var ekki samræmd. Hvernig getum við þá fullvissað okkur um að jafnræðis hafi verið gætt fyrst þessi flokkun var ekki samræmd?

Það getur verið að hv. þingmaður hafi ekki tíma til að svara miklu fleiri spurningum en þetta þannig að ég læt þetta duga.