153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.

784. mál
[16:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Afsakið, ég gleymdi fyrri spurningu hv. þingmanns, ég er að reyna að rifja hana upp þar sem ég stend. (JPJ: … meta fjárfesta …) Jú, meta fjárfesta ef þú veist ekki hverjir þeir eru, takk fyrir. Hv. þingmaður spyr hvernig hægt sé að meta þetta ef ekki var hægt að kanna nákvæmlega hverjir voru að baki hverjum einstaklingi, ef ég skil spurninguna rétt, sem er nátengd spurningu hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur. Ég vil í raun byrja á að segja það sama og þar. Það er gert ráð fyrir því að fólk fylgi lögum og reglum í þessu sem öllu öðru. Það er ekkert sem bendir til að þarna hafi fólk verið að villa á sér heimildir eða eitthvað slíkt. Og að því gefnu að fólk sé ekki að villa á sér heimildir, sem ég ítreka að ekkert bendir til að hafi verið gert, þá liggur auðvitað fyrir þessi grófa skipting, þú veist hverjir þessir stóru fjárfestingaraðilar eru og þú veist hverjir eru smærri aðilar. Það er þannig sem þau fara í sína vegferð við að meta þetta. Mér finnst því kannski óþarflega bratt að leggja þetta upp eins og þarna hafi aðilar verið í fullkomnu myrkri um hvaða aðilar þetta voru. Þeir voru það alls ekki, að því gefnu að fólk hafi sagt satt og rétt frá og ég hef ekki ástæðu til að halda að svo hafi ekki verið. Seinni spurningin var aftur? (JPJ: … tryggja jafnræði við framkvæmdina … flokkun fagfjárfesta …) Einmitt, að tryggja jafnræði með því, þá held ég að það sé bara sama svar. Þarna liggja fyrir ákveðnar kríteríur og það liggur fyrir mat á því hvernig best var að manna þennan hóp. Mér vitandi hefur ekkert bent til þess, eða verið bent á það, að jafnræðis hafi ekki verið gætt.