skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Frú forseti. Mig langar í mínu fyrra andsvari að fá að spyrja hv. þingmann út í atriði sem kemur fyrir í álitinu sem og í ræðu hennar hér áðan. Í álitinu segir, með leyfi forseta:
„Í fjórða lagi hefur verið uppi hávært ákall um óháða og sjálfstæða rannsókn á sölu á eignarhlut ríkisins. Er það ekki síst vegna þess hve áleitinna spurninga hefur verið spurt um hæfi og mögulegt vanhæfi þeirra sem framkvæmdu söluna í skilningi stjórnsýslulaga. Þá verður ekki litið hjá því að úttekt ríkisendurskoðanda hófst að frumkvæði sjálfs fjármála- og efnahagsráðherra, sem hefði þó eðlilega átt að teljast andlag úttektarinnar. Sjálfstæð og óháð rannsókn er algjör forsenda þess að skapað verði traust um meðferð ríkisstjórnarinnar og fjármála- og efnahagsráðherra á ríkiseignum.“
Ég ætla, forseti, að fá að nota þetta fyrra andsvar mitt til að velta þessu aðeins upp því að mér þykir þetta undarleg staðhæfing í garð ríkisendurskoðanda. Í 3. mgr. 1. gr. laga um ríkisendurskoðanda segir mjög skýrt:
„Ríkisendurskoðandi er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum.“
Mig langar, forseti, að fá að spyrja hv. þingmann: Er minni hlutinn í raun að segja að ríkisendurskoðandi hafi brotið gegn þeirri frumskyldu sinni að vera sjálfstæður og óháður í sinni rannsókn?