skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Með þessari athugasemd er minni hlutinn að benda á að það veki vissulega upp spurningar að það sé fjármálaráðherra sjálfur sem í raun tekur fram fyrir hendurnar á þinginu og ákveður í hvaða farveg rannsókn á þessu máli skuli fara. Þrátt fyrir að það sé sameiginleg afstaða stjórnarandstöðunnar, svo langt sem ég skynja hana a.m.k., að rannsóknarnefnd Alþingis væri rétti kosturinn og rétta leiðin til að fara í þessu þá velur stjórnarmeirihlutinn að óska eftir úttekt ríkisendurskoðanda, þótt fyrir liggi að slík úttekt sé háð ákveðnum takmörkunum. Ég vil líka benda á í þessu samhengi að víða á Norðurlöndunum er það þannig að ráðherrum er ekki heimilt að óska eftir úttekt ríkisendurskoðanda. Það er ákveðin ástæða fyrir því. Svo er ekki hér. Ég er að sjálfsögðu ekki að gera neina atlögu að sjálfstæði ríkisendurskoðanda, né við í minni hlutanum. Við erum hins vegar að benda á að þetta inngrip fjármálaráðherra í rannsókn á sínum eigin embættisverkum sé ekki til þess fallið að skapa traust um rannsóknina og í raun fjalli skýrsla ríkisendurskoðanda lítið sem ekkert um athafnir ráðherrans sjálfs sem þó er fullt tilefni til að fjalla um.