skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég ætla ekki að elta frekar ólar við hann um mismunandi skilning okkar á um hvort ríkisendurskoðandi hafi í störfum sínum verið sjálfstæður og óháður eða ekki. Ég ætla hins vegar í mínu seinna andsvari að fá aðeins að spyrja á svipuðum nótum varðandi þá skoðun hins mikla fræðimanns, Tryggva Gunnarssonar, fyrrverandi umboðsmanns Alþingis, sem hv. þingmaður fjallaði um í sinni ræðu. Mér þykir rétt að því sé haldið til haga hér að það lögfræðiálit sem meiri hluti nefndarinnar sá ekki ástæðu til að fara í var lögfræðiálitið sem var unnið af honum sjálfum, það var ekki almennt lögfræðiálit sem var lagt þar á borð, bara svo því sé haldið til haga. Eins og ég hef áður sagt þá var okkur kannski ákveðinn vandi á höndum varðandi skoðun Tryggva, eins ágæt og hún eflaust er og til margs góðs, ekki ætla ég að fara að rökræða við þann ágæta fræðimann hér og nú, enda er hann ekki hér. En hins vegar stangast sú skoðun á við mjög skýr orð ríkisendurskoðanda sjálfs þar sem hann sagði að hann hefði skoðað þau lagalegu atriði sem hv. þingmaður fór hérna yfir en að ekkert hafi kallað á frekari skoðun eða úttekt og þess vegna er það ekki að finna í skýrslunni. Ég hef áður sagt að það hefði verið heppilegra ef þessi atriði hefðu fengið einhvers konar farveg í skýrslunni sjálfri þannig að við þyrftum ekki að vera í þessum vangaveltum. En mig langaði að enda á spurningu því að í 1. og 2. mgr. 16. gr. laga um Ríkisendurskoðun ber ríkisendurskoðanda að vekja athygli á lögbrotum ef hann verður þeirra var. Hann rannsakaði þessa sölu. Hann sá ekkert sem benti til lögbrota og hafði því ekkert til þess að vekja athygli á. Er minni hlutinn hérna aftur að segja að í þessu hafi ríkisendurskoðandi heldur ekki sinnt sinni frumskyldu?