153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.

784. mál
[16:37]
Horfa

Frsm. minni hluta (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi viðbrögð ríkisendurskoðanda sjálfs við athugasemdum Tryggva Gunnarssonar, sem hv. þingmaður gerir hér að umfjöllunarefni sínu, þegar ríkisendurskoðandi er spurður út í athugasemdir Tryggva Gunnarssonar segist hann líta svo á að með talpunktum velti Tryggvi upp spurningum um lögfræðileg úrlausnarefni sem vert sé að veita gaum en séu ekki í verkahring Ríkisendurskoðunar. Nú er það svo að bæði meiri hlutinn og minni hlutinn gagnrýna ríkisendurskoðanda fyrir að hafa alls ekki verið skýr um hvaða atriði voru tekin til skoðunar og hver ekki. Þegar við erum sammála um eitthvað, hv. þingmaður, þá held ég að það sé vert að taka mark á því. Ríkisendurskoðandi hefur hreinlega ekki verið skýr með það hvort hann hafi kannað hvort stjórnsýslulögum hafi verið fylgt eða ekki. En ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að skoða einfaldlega hvernig ríkisendurskoðandi afmarkar sjálfur sína úttekt. Þar kemur ekkert fram um að til standi að skoða hvort stjórnsýslulögum hafi verið fylgt eða ekki, hvort upplýsingalögum hafi verið fylgt eða ekki. Þar eru tveir lagabálkar teknir til skoðunar og eins og kemur fram í ítarlegu áliti minni hlutans, sem ég hvet hv. þingmann til að kynna sér, þá er heldur ekki afgerandi niðurstaða í álitinu um hvort þessum sömu lögum hafi verið fylgt eða ekki þrátt fyrir margvíslegar ábendingar sem gætu gefið tilefni til þess að álykta að svo hafi verið.